Svandís Svavarsdóttir (Replik)
- Dato
- 28/10 2009
- Dagsordenspunkt
- 10. Energi og klima
- Taler
- Svandís Svavarsdóttir
Ég þakka fyrir góða spurningu. Það er mín bjargfasta trú og skoðun að í svo stórum málum sem loftslagsmálunum og raunar fleiri viðfangsefnum 21. aldarinnar, til að mynda misrétti karla og kvenna, þá þurfum við að beita samstöðustjórnmálum, „konsensuspolitik“. Þess vegna snýst þetta viðfangsefni ekki bara um loftslagsógnina og hvernig við ætlum að koma út úr henni heldur um svo mörg önnur stór viðfangsefni 21. aldarinnar. Og þar getum við á Norðurlöndum – sem höfum byggt okkar samfélag upp með jafnaðarmennsku fyrst og fremst að leiðarljósi – verið leiðandi í samfélagi þjóðanna um það að leiða þessi stærstu viðfangsefni 21. aldarinnar, fátæktina í syðri hluta heimsins, misrétti milli karla og kvenna og loftslagsógnina með samstöðustjórnmálum þannig að við getum verið leiðandi, líka í aðferðinni en ekki bara innihaldinu.
Dansk oversættelse:
Tak for et godt spørgsmål. Det er min overbevisning, at vi, i vigtige spørgsmål som klimaet, og faktisk også når det gælder andre udfordringer i det 21. århundrede, såsom ulighed mellem mænd og kvinder, så må vi anvende konsensuspolitik. Derfor drejer denne opgave sig ikke blot om klimatruslen, og hvordan vi klarer os igennem den, men også om andre store opgaver i det 21. århundrede. Og der kan vi i Norden – som allerede har opbygget et samfund, først og fremmest med udgangspunkt i lighed – vi kan tage en førerposition blandt verdens lande når vi skal løse de største opgaver i det 21. århundrede: fattigdommen på jordens sydlige halvkugle, uligheden mellem mænd og kvinder og klimatruslen ved hjælp af konsensuspolitikken, således at vi kan være førende, både når det gælder metoder og indehold.
