Ólína Þorvarðardóttir (Hovedindlæg)
- Dato
- 28/10 2009
- Dagsordenspunkt
- 8. Arktisk politik og naturresurser
- Taler
- Ólína Þorvarðardóttir
Ordfører, jeg taler på islandsk.
Vestnorræna ráðið fagnar tillögu um alþjóðlega ráðstefnu um þróun norðurskautsins. Meginmarkmiðið er að þróun norðurskautsins verði í friðsamlegri samvinnu í stað samkeppni og hugsanlega átaka. Vestur-Norðurlöndin eiga öll mikilla hagsmuna að gæta. Stefna Íslands og hinna Vestur-Norðurlandanna hefur ávallt verið sú að eiga náið samstarf við þau ríki sem eiga aðild að Norðurskautsráðinu þegar kemur að stefnumótun og samvinnu um mál sem kalla á úrlausnir. Auk þess er Ísland þeirrar skoðunar að til lausnar á vandamálum sem upp kunna að koma eigi að nota þau samningatæki sem felast í aðild að Hafréttarsamningi Sameinuðu þjóðanna og Alþjóðasiglingamálastofnuninni.
Vestnorræna ráðið hélt þemaráðstefnu um öryggis- og björgunarmál á Norður-Atlantshafi sumarið 2008. Síðan hefur margvísleg þróun átt sér stað sem vert er að fagna. Ber þar fyrst að nefna tillögur um aukið norrænt samstarf á norðurslóðum sem fyrrum utanríkisráðherra Noregs, Thorvald Stoltenberg, setti saman að beiðni utanríkisráðherra Norðurlandanna. Sama gildir um gerð vákorts fyrir Norður-Atlantshafið sem er eitt af forgangsverkefnum í formennskutíð Íslands. Vestnorræna ráðið fagnar einnig þeirri vinnu sem fer fram núna innan Alþjóðasiglingamálastofnunarinnar um breytingar á reglum um útbúnað skipa en þær eiga að auka siglingaöryggi í Norður-Atlantshafi. Allt sem nú er nefnt stuðlar að auknu öryggi á slóðum norðurskautsins til framtíðar og því fagnar Vestnorræna ráðið. Ég þakka áheyrnina.
Dansk oversættelse:
Ordfører, jeg taler på islandsk.
Vestnordisk Råd bifalder forslaget om en international konference om udviklingen i de arktiske regioner. Hovedformålet er at udviklingen i Arktisk sker i et fredeligt samarbejde i stedet for konkurrence og eventuelle konflikter. Det er vigtigt for hele Vestnorden. Island og det øvrige Vestnorden har altid lagt vægt på et tæt samarbejde med de stater, der sidder i Arktisk Råd, når det gælder strategi og samarbejde om sager, der kræver løsninger. Derudover anser Island, at eventuelle problemer skal løses med de midler, som FN’s Havretskonvention og Den internationale søfartsorganisation (IMO) råder over. Vestnordisk Råd arrangerede en temakonference sommeren 2008 om redningssamarbejde i Nordatlanten. Siden er der sket en udvikling på flere områder, som der er grund til at bifalde. Først og fremmest er der forslag om øget nordisk samarbejde i de nordlige egne, udarbejdet af Norges tidligere udenrigsminister, Thorvald Stoltenberg, på opdrag fra de nordiske udenrigsministre. Det samme gælder et risikokort for Nordatlanten, hvilket var en af det islandske formandskabs prioriteringer. Vestnordisk Råd bifalder også det arbejde, der nu er indledt i Den Internationale Søfartsorganisation for at revidere reglerne om udstyr i skibe, hvilket vil øge søfartssikkerheden i Nordatlanten. Alt det jeg nu har nævnt vil bidrage til øget sikkerhed i de arktiske regioner fremover og det bifaldes af Vestnordisk Råd. Tak for ordet.
