Ólína Þorvarðardóttir (Hovedindlæg)
- Dato
- 28/10 2009
- Dagsordenspunkt
- 8. Arktisk politik og naturresurser
- Taler
- Ólína Þorvarðardóttir
Ordfører, jeg vil give min tale på islandsk.
Vestnorræna ráðið fagnar tilmælum Norðurlandaráðs um norræna umræðu um endurskoðun á sameiginlegri sjávarútvegsstefnu Evrópusambandsins. Sem framlag til þeirrar umræðu vil ég vekja athygli á þemaráðstefnu Vestnorræna ráðsins um fiskveiðistjórnunarkerfi Vestur-Norðurlandanna sem haldin verður 7.-11. júní á Íslandi næsta ár. Ráðstefnan mun bjóða upp á beinan samanburð á kvótakerfunum á Íslandi og á Grænlandi og sóknardagakerfinu í Færeyjum með hliðsjón af þáttum eins og verndunarsjónarmiðum og arðsemi. Þannig verður skapaður grundvöllur fyrir samanburð á kostum og göllum hinna mismunandi kerfa auk umræðu um lausnir á vandamálum eins og brottkasti. Sérfræðingum, fulltrúum sjávarútvegsins og ráðamönnum verður boðið til ráðstefnunnar. Joe Borg, framkvæmdastjóra sjávarútvegsmála hjá Evrópusambandinu, verður einnig boðið á ráðstefnuna en endurskoðun á sjávarútvegsstefnu ESB lýtur meðal annars að þeirri spurningu hvort eigi að stjórna fiskveiðum með kvótum eða sóknardögum. Annað sem verið er að skoða innan ESB er hvort færa eigi ákvörðunarvald um úthlutun fiskveiðiheimilda nær þeim sem hlut eiga að máli. Rannsóknir Elinor Åström sem 12. október síðast liðinn var fyrst kvenna til að hljóta Nóbelsverðlaun í hagfræði sýna að nýtingarstjórn náttúruauðlinda á borð við fiskistofna er betur komið fyrir í höndum nærliggjandi samfélags en fjarlægs yfirvalds. Ég þakka áheyrnina.
Dansk oversættelse:
Vestnordisk Råd bifalder Nordisk Råds forslag om en nordisk debat om revisionen af EU's fælles fiskeripolitik. Som et led i denne debat vil jeg henlede opmærksomheden på Vestnordisk Råds temakonference om de vestnordiske fiskeriforvaltningssystemer, der finder sted i dagene 7. – 11. juni 2010 i Island. På konferencen vil man sammenligne kvotesystemerne i henholdsvis Island og Grønland og den færøske havdageordning (fiskedage) med udgangspunkt i beskyttelse af fiskebestandene og lønsomhed (er ekki til betra orð fyrir arðsemi?). Dermed skabes et grundlag for at sammenligne de forskellige systemers fordele og ulemper, og diskutere løsninger på problemer, for eksempel dumping af fisk. Eksperter, repræsentanter fra fiskerisektoren og politikere bliver inviteret til konferencen. EU's kommissær for fiskeri i maritime anliggender, Joe Borg, bliver også inviteret til konferencen, da revisionen af EU's fiskeripolitik blandt andet berører(?) spørgsmålet om fiskeriet skal forvaltes ved hjælp af kvotaer eller havdage (fiskedage). Et andet emne, man nu undersøger i EU, er hvor vidt beslutninger om uddeling af fisketilladelser skal tages tættere på de berørte regioner. Elinor Åström, som den 12. oktober i år modtog som første kvinde nobelprisen i økonomi, viser i sin forskning, at forvaltning af naturressourcer som fiskebestandene bør ligge i det nære samfund frem for en fjern myndighed. Tak for ordet.
