Á næstu fimm árum léttist framfærslubyrðin í Noregi og á Íslandi, en þyngist á hinum Norðurlöndunum, þó sýnu mest í Danmörku. Frá 2010 þyngist framfærslubyrðin mjög mikið, sérstaklega í Finnlandi og á Álandseyjum. Þetta kemur fram í Norrænum hagtölum 2005, en Norræna ráðherranefndin kynnir bókina í húsakynnum sínum í Kaupmannahöfn föstudaginn 14. október kl. 11:00.
Per Kaalund fulltrúi í dönsku sendinefndinni í Norðurlandaráði og Frank Dahlgaard ritstjóri kynna árbókina.
Í bókinni eru samanburðartölur á fjölmörgum sviðum fyrir Norðurlöndin fimm og sjálfstjórnarsvæðin þrjú. Í henni má nú í fyrsta sinn skoða tölfræðilegan samanburð milli Norðurlanda og annarra landa í Vestur-Evrópu, Bandaríkjanna og Japan - og þá aðallega efnahagstölur.
Bókin sem er 343 síður kostar 350 danskar krónur og hægt er að panta hana á www.norden.org/order eða hjá Svensk-Norsk Bogimport A/S, Esplanaden 8B, 1263 København K., sími +45 3314 2666, snb@bog.dk , www.snbog.dk . Hægt er að panta ókeypis kynningareintök til fjölmiðlaumfjöllunar hjá Johannes Jansson á jj@norden.org .