Document Actions
This content is not available in your chosen language, we are displaying it in Icelandic.

Vill að Norðurlönd beiti sér fyrir útflutningi á tónlist

Katrín Jakobsdóttir, samstarfsráðherra Norðurlanda, vill að Norræna ráðherranefndin beiti sér fyrir því að efla útflutning á tónlist. Þetta kom fram í umræðum á Norðurlandaráðsþingi í Reykjavík í dag.

Nov 03, 2010
Katrín Jakobsdóttir
Photographer
Magnus Fröderberg/norden.org

Síðastliðin tvö ár hefur Norræna ráðherranefndin unnið að því að efla skapandi iðnað á borð við bókaútgáfu, hönnun, tónlist, tölvuleikjagerð og kvikmyndagerð innan ramma verkefnisins KreaNord.

Katrín leggur til að næsta áherslusvið KreaNord verði tónlistarútflutningur, enda sé mikill áhugi á því innan tónlistariðnaðarins.

Contacts

Jesper F. Schou-Knudsen
Phone +45 33 96 03 55
Email jsk@norden.org

Related content