Document Actions
This content is not available in your chosen language, we are displaying it in Danish.

Bjarni Benediktsson (Reply)

Date
Oct 27, 2009
Agenda item
5. Nordic Summit
Speaker
Bjarni Benediktsson

Í fyrsta lagi langar mig til að segja – í tilefni af umræðunni um Ísland og Evrópusambandið – að það getur verið hættulegt heilsu manna að halda niðri í sér andanum þar til að Ísland er komið inn. Mér finnst að þessi vettvangur hér hefði mátt nýtast betur til þess að auka skilning á sjónarmiðum einstakra landa í samskiptum þeirra við Evrópusambandið. Og hér hafa komið fram ábendingar, til dæmis frá Grænlandi og Færeyingum og okkur Íslendingum, um vandræði í samskiptum við Evrópusambandið sem að þetta ætti að vera vettvangur til að auka skilning á okkar sjónarmiðum með. Og ég sakna þess að hann hafi ekki nýst í þeim tilgangi betur en raun ber vitni. Mig langar til að byrja á því að spyrja forsætisráðherra að því hvort það sé henni ekki mikið áhyggjuefni hvernig almenningsálitið, stuðningurinn við Evrópusambandsaðildina, hefur verið að þróast undanfarna mánuði og hvort að það sé ekki í reynd þannig að aðildarumsókn Íslands að Evrópusambandinu byggist á því að sambandið veiti okkur mjög ríkar undanþágur, t.d. við sjávarútvegsstefnuna.

Dansk oversættelse:

For det første har jeg lyst til at sige – i anledningen af diskussionen om Island og EU – at det kan være sundhedsfarligt at holde vejret indtil Island er kommet med i unionen. Jeg synes, at vi kunne have udnyttet dette forum bedre til at forøge forståelsen for holdningerne i de enkelte lande til deres forhold til EU. Og vi har fået tilkendegivelser, for eksempel fra Grønland, Færøerne og os i Island, om de vanskeligheder, der er forbundet med relationerne til EU, og dette forum burde være det sted hvor vi kunne skabe forståelse for vores holdninger. Og jeg savner, at dette forum ikke i højere grad er blevet brugt til dette formål end det har været tilfældet. Jeg har lyst til at begynde med at spørge statsministeren, om hun ikke er bekymret over hvordan stemningen i befolkningen, tilslutningen til et medlemskab af EU, har udviklet sig inden for de seneste måneder, og om det ikke faktisk forholder sig sådan, at Islands ansøgning om medlemskab af EU forudsætter at vi får rigelige dispensationer, for eksempel i fiskeripolitikken.