Document Actions
This content is not available in your chosen language, we are displaying it in Danish.

Jóhanna Sigurðardóttir (Reply)

Date
Oct 27, 2009
Agenda item
5. Nordic Summit
Speaker
Jóhanna Sigurðardóttir

Ja, það er auðvitað ljóst að við leggjum alla áherslu á sjávarútvegsmálin og að við fáum viðunandi niðurstöður þar, þannig að við höfum yfirráð áfram yfir okkar sjávarauðlindum, okkar orkuauðlindum. En varðandi breyttan stuðning á Íslandi við aðild að ESB þá er þannig – og ég neita því bara ekki – að afstaðan varðandi Icesave-málið og þær skuldbindingar sem Ísland hefur þurft að taka á sig vegna þess, út af Hollendingum og Bretum og þeim kröfum sem til þess eru gerðar, að skoðanakannanir sýna að það er núna, að minnsta kosti núna í augnablikinu hefur verið minni stuðningur við Evrópusambandið og aðild að því en verið hefur. En ég er sannfærð um það að þegar liggur fyrir hvað við fáum út úr þeim viðræðum og við höfum tækifæri til að kynna það á Íslandi vel og vandlega – sem við auðvitað gerum – þá mun sú skoðun breytast og sannfæring mín er sú að við höfum meirihluta fyrir aðildarumsókninni, að við munum hafa það þegar á reynir.

Dansk oversættelse:

Det er selvfølgelig klart, at vi lægger stor vægt på fiskeriet og at vi opnår tilfredsstillende resultater, således at vi fortsat råder over vores naturressourcer i havet, og vores energiressourcer. Men når det gælder hvordan tilslutningen til et medlemskab af EU udvikler sig, så er det sådan – og jeg benægter det slet ikke – så er holdningerne til Icesave-sagen og de forpligtelser, Island har måttet påtage sig på grund af denne, på grund af Holland og Storbritannien og de krav, de stiller, så viser opinionsundersøgelser, i hvert fald i øjeblikket, at der er mindre tilslutning til EU og et medlemskab af EU end tidligere. Men jeg er overbevist om, at når resultaterne fra forhandlingerne foreligger, og vi får lejlighed til at præsentere dem grundigt i Island – hvilket vi selvfølgelig gør – så vil stemningen ændre sig, og jeg er overbevist om at der bliver flertal for ansøgningen om et medlemskab, at det vil lykkes os, når vi når så langt.