Document Actions
This content is not available in your chosen language, we are displaying it in Danish.

Jóhanna Sigurðardóttir (Reply)

Date
Oct 27, 2009
Agenda item
5. Nordic Summit
Speaker
Jóhanna Sigurðardóttir

Ja, það er auðvitað íslensku þjóðarinnar að ákveða það, en ekki fjármálaráðherra Íslands.

Og það er þannig að við höfum sótt um aðild að Evrópusambandinu og sá ferill er í gangi – og við erum að vona það að aðildarumsókn Íslands verði tekin fyrir nú í desembermánuði og ferillinn geti farið að stað – og við erum að vona að hann geti tekið, ja, kannski tvö-þrjú ár sem er stuttur tími en ég minni á að við erum aðilar að EES-samningnum og við höfum þegar innleitt fjöldann allan af tilskipunum Evrópusambandsins, sennilega um 70%. Þess vegna ætti þetta að vera hraðari ferill en ella og síðan – þegar við höfum fengið niðurstöðuna í aðildarviðræðunum – þá mun sú niðurstaða vera lögð fyrir þjóðaratkvæðagreiðslu, og það er ekkert annað en þjóðaratkvæðagreiðsla sem gildir þar, hvort við verðum aðilar eða ekki.

Dansk oversættelse:

Det er selvfølgelig op til den islandske befolkning at bestemme det, og ikke Islands finansminister.

Det forholder sig således, at vi har søgt om optagelse i EU og processen er sat i gang. Det, vi håber, er, at Islands ansøgning om optagelse vil blive behandlet nu i december måned, og at denne proces kan gå i gang. Vi håber, at den vil tage måske to til tre år, det er kort tid, men jeg vil minde om, at vi er omfattet af EØS-aftalen, og at vi allerede har implementeret en stor mængde EU-direktiver, formentlig ca. 70 %. Derfor burde det blive en forholdsvis hurtig proces, hvorefter – når resultatet fra optagelsesforhandlingerne foreligger – da bliver resultaterne sendt til en folkeafstemning, og det er kun en folkeafstemning, der afgør resultatet, hvad enten vi bliver medlemmer eller ej.