Bjarni Benediktsson (Main speech)
- Date
- Oct 28, 2009
- Agenda item
- 7. General Debate
- Speaker
- Bjarni Benediktsson
Kæru vinir.
Mig langar að byrja á því að segja hér að ég hef verið þátttakandi í stjórnmálum sem alþingismaður á Íslandi síðan 2003. Á þeim tíma, þá verð ég að viðurkenna það, að ég hef ekki mikið orðið var við störf Norðurlandaráðs í mínum störfum sem þingmaður. Þess vegna er það mikil upplifun fyrir mig að koma hingað og taka þátt í þessu fyrsta Norðurlandaráðsþingi og ég hef verið í Norðurlandaráði fyrir Alþingi síðan við kusum síðastliðið vor. Og það er dálítið merkilegt að koma hingað og hlusta á þær raddir sem að hér heyrast svo skýrt um að við séum ekki að ná nægilega vel inn á þjóðþingin vegna þess að það er einmitt mín upplifun. En þetta vandamál er auðvitað fyrir okkur sjálf að leysa. Og ég hef orðið vitni að því í mínum störfum á þessum stutta tíma sem ég hef verið þátttakandi í Norðurlandaráði að hér eru frábær tækifæri til þess að hafa mikil áhrif og til þess að samræma sjónarmið. Og koma þeim síðan á framfæri heima á þjóðþingunum. Ég tek undir með þeim sem að hafa lagt áherslu á þetta í sínu máli hér og mun leggja mitt af mörkum og ég held að það sé, eins og ég sagði áðan, í höndum okkar allra sem erum hér að gera eitthvað í þessu máli og láta það ekki gerast aftur, að það fari svona mikill tími í að ræða það hér á þessum vettvangi hversu mikið vandamál þetta er. Þetta skulum við bara leysa. Mig langar að öðru leyti að minnast á tvö meginatriði sem að mér finnst að við eigum að nýta okkur sérstaklega til þess að samræma sjónarmið og okkar skilning. Annað er Evrópusambandið vegna þess að ég horfi á Norðurlandaráð sem frábæran vettvang fyrir ríki sem eru í fyrsta lagi innan Evrópusambandsins, í öðru lagi inni á Evrópska efnahagssvæðinu og í þriðja lagi alfarið fyrir utan Evrópusamvinnuna en með einhvers konar lauslega samninga eða samkomulag við Evrópusambandið. Þessi ríki eiga þennan sameiginlega vettvang hér til þess að samræma sín sjónarmið og auka skilning á tækifærum eða ógnunum í tengslum við Evrópusamvinnuna. Og þennan vettvang eigum við einmitt að nota til þess að gera þetta. Mér finnst að það hafi farið of mikið fyrir óskinni um að við öll förum inn í Evrópusambandið, að við verðum öll einsleit í samstarfi okkar við Evrópusambandið, en ég myndi miklu frekar vilja sjá áhersluna á að nota þetta sem raunverulegan vettvang til þess að samræma sjónarmið, auka skilning á kröfum hvers annars, væntingum og, eins og ég sagði, ógnunum eða tækifærum á þessu sviðinu. Nú, hitt eru loftslagsmálin og þau eru auðvitað líka til vitnis um það hversu mikilvægu hlutverki Norðurlandaráð getur gegnt. Hér fer fram umræða sem að skiptir ekki bara Norðurlöndin heldur allan heiminn miklu máli og við vitum það öll hér að við erum svæði sem að er í fremstu röð á þessu sviðinu. Þetta vitum við hvert fyrir sig og við sjáum það líka þegar við komum saman. Og það eru stórkostlega merkilegir hlutir að gerast á okkar svæði í loftslagsmálum. Ég sé það til dæmis heima í mínu landi að þar hafa álver, þrátt fyrir að hafa tvöfaldað framleiðslu sína, náð að draga um helming úr sinni losun. Þau eru í dag að losa einn fjórða af því sem að þau voru að gera fyrir um það bil tuttugu árum síðan. Og tækninni fleytir fram. Ný tækni er að gera mögulegt að binda koltvísýring í fast form og koma þannig í veg fyrir losun. Tækifærin eru öll okkar, við skulum nýta þennan vettvang til þess að læra hvert af öðru, stilla saman strengi og vera áfram leiðandi á heimsvísu sem framúrskarandi svæði á öllum sviðum. Takk fyrir.
Dansk oversættelse:
Kære venner. Jeg har lyst til at begynde med at sige, at jeg har deltaget i politik, som medlem af Altinget i Island, siden 2003. Under denne tid, så må jeg indrømme, at jeg ikke har lagt meget mærke til Nordisk Råd i mit arbejde som altingsmedlem. Derfor er det en stor oplevelse for mig at komme her og deltage for første gang i Nordisk Råds session, og jeg har siddet i Nordisk Råd for Altinget siden vi havde valg i foråret. Og det er lidt interessant at komme her og lytte til stemmer, der høres så tydeligt, om at vi ikke rigtigt slår igennem i de nationale parlamenter, for det er netop også min oplevelse. Men det er selvfølgelig et problem, vi selv må løse. Jeg har været vidne til, i mit arbejde, under den korte tid, jeg har deltaget i Nordisk Råd, at her er fantastiske muligheder for at opnå stor indflydelse, og til at koordinere synspunkter. Hvorefter vi formidler dem videre til de nationale parlamenter. Jeg tilslutter mig dem, der i deres indlæg har lagt vægt på dette, og selv vil jeg også bidrage, og jeg tror, ligesom jeg nævnte før, at det er op til os, der er her i dag, at gøre noget ved sagen, og forhindre, at det gentager sig, at der går så meget tid til at diskutere problemets omfang i dette forum. Det skal bare løses.
I øvrigt har jeg lyst til at nævne to hovedpunkter, som jeg anser at vi skal udnytte særligt for at koordinere synspunkter og vores forståelse. Det ene er Den Europæiske Union, fordi jeg ser Nordisk Råd som et fremragende forum for stater, der er henholdsvis medlemmer af EU, en del af EØS-området, eller som er helt uden for det europæiske samarbejde, eller løst knyttet dertil via aftaler med EU. Disse stater har her et fælles forum for at koordinere deres synspunkter og øge forståelse for de muligheder og trusler, der er forbundet med det europæiske samarbejde. Og det er netop det, vi skal anvende dette forum til. Jeg synes at det, der har fyldt alt for meget, er ønsket om at vi alle sammen tilslutter os Den Europæiske Union, at vi alle sammen bliver ensartede i forhold til Den Europæiske Union, men jeg ville meget hellere se fokus blive lagt på at anvende dette forum aktivt til at koordinere synspunkter, øge forståelsen for hinandens krav, forventninger, og som jeg sagde tidligere, trusler og muligheder på dette område.
Det andet er klimaspørgsmålet, og det vidner selvfølgelig om den vigtige rolle, Nordisk Råd kan spille. Her foregår en debat, som er vigtig, ikke blot for Norden men hele verden, og vi ved alle sammen, at vi er en region, der er førende på dette område. Det ved vi hver for sig, og vi ser det også når vi mødes. Der foregår fantastisk interessante ting i vores region på klimaområdet. Jeg ser det for eksempel i mit eget hjemland, hvor aluminiumsværkerne, til trods for at de har fordoblet deres produktion, så er det lykkedes dem at halvere deres udslip. I dag udgør deres udslip en fjerdedel af hvad de gjorde for cirka tyve år siden. Og teknologien skrider fremad. Ny teknologi gør det muligt at binde kuldioxid i fast form og således forhindre udslip. Mulighederne er alle sammen vores, lad os udnytte dette forum til at lære af hinanden, at sammenstille vores kræfter og fortsat være ledende i verden som en foregangsregion på alle områder. Tak.
