Document Actions

Hreinni höf á Norðurlöndum

Order publication
Free of charge

Strendur og hafið umhverfis norðurlöndin þarf að vernda gegn mengun og athöfnum manna sem geta haft áhrif á umhverfi og vistkerfi hafsins. Ofauðgun af völdum næringarefna, ofveiði og hættuleg og umhverfisskaðleg efni eru dæmi um slíkt. Ofauðgun næringarefna er eitt stærsta umhverfisvandamál Eystrasaltsins en á vestari og nyrðri svæðum er það hætta af völdum olíuefna og flutningi á þeim og uppsöfnun á þrávirkum lífrænum efnum sem eru helstu áhyggjuefnin. Hafið og strandsvæði eru áhersluefni norrænnar framkvæmdaáæltunar í umhverfismálum fyrir árið 2009-2012 og markmiðið er að öll norræn höf séu nýtt á sjálfbæran hátt og séu í góðu ásigkomulagi árið 2010.

Þessi bæklingur fjallar um sjö verkefni sem er árangur af samvinnu norrænna vísindamanna við Evrópska samstarfsaðila sem öll miða að því að leysa vandamál sem skapast hafa af athöfnum manna. Markmiðið er að skilja hvernig vistkerfi sjávar virkar og hvernig við ættum að fara með þessa sameiginlegu auðlind okkar svo vel sé.

Öll verkefnin fá fjárhagslegan stuðning frá vinnuhópi norræna ráðherraráðsins um haf og loft / vinnuhópi um visterfi sjávar.

Frekari upplýsingar um norræn umhverfisverkefni eru á heimasíðunni.

Download publication (free)

2455Kb
Date of publication
Jul 02, 2010
ISBN
978-92-893-2077-1
Language
Icelandic
Number of pages
20
Publication number
ANP 2010:737

 

Search publications