Tehdyt toimenpiteet
Sisältöä ei ole saatavilla valitsemallasi kielellä, joten se näytetään kielellä islanti.

Eignarhald á auðlindum verði skilgreint í stjórnarskrám Norðurlanda

Flokkahópur Vinstri-Grænna í Norðurlandaráði telur að skilgreina þurfi eignarhald á náttúruauðlindum í löggjöf og stjórnarskrám norrænu ríkjanna. Fulltrúar Grænlands og Færeyja í flokkahópum segja að pólitísk samstaða sé í löndum þeirra um að auðlindir skuli vera í eigu þjóðarinnar og að það þurfi að koma fram í stjórnarskrám þeirra í framtíðinni.

02.11.2010
Valokuvaaja
Magnus Fröderberg/norden.org

Þetta kom fram á blaðamannafundi sem flokkahópur Vinstri-grænna hélt í dag, þriðjudaginn 2. nóvember, í tengslum við Norðurlandaráðsþing í Reykjavík.

Danski þingmaðurin Line Barfod benti á að þema Norðurlandaráðsþings að þessu sinni væri grænn vöxtur sem leið út úr kreppunni

Ef við eigum að komast út úr fjármálakreppunni og leysa loftslagsvandann er ekki nóg að ræða myndun nýrra starfa, við þurfum líka að kanna rót vandans. Við teljum að eignarhald á náttúruauðlindunum sé lykilatriði í því að skilja orsakirnar. Ef koma á í veg fyrir að vandamál á borð við þessi komi upp aftur í framtíðinni verðum við að tryggja að náttúruauðlindirnar verði í almannaeigu.

Steingrímur J. Sigfússon fjármálaráðherra kynnti tillöguna á fundinum fyrir hönd Vinstri-grænu flokkanna. Hann benti á að auk eignarhaldsins þyrfti að tryggja að arður af nýtingu auðlindanna rynni til almenninngs.

Þessar spurning verða æ mikilvægari eftir því sem baráttan um auðlindirnar harðnar og verð á orku hækkar. Hver á að njóta arðsins af þessum takmörkuðu auðlindum? Þá er klárlega best að þær séu í almannaeigu og að auknar tekjur af nýtingu þeirra komi almenningi til góða.

Auðlindaákvæði verður í stjórnarskrám Færeyja og Grænlands

Færeyski þingmaðurinn Høgni Hoydal segir að pólitísk samstaða sé um það í Færeyjum að auðlindirnar eigi að vera í almannaeigu.

Í Færeyjum er verið að vinna að stjórnarskrá og þar er spurningin um eignarhald á auðlindum mikilvægt mál. Það kemur fram í drögunum að auðlindirnir eigi að vera í almannaeigu og jafnframt að arðurinn af þeim skuli koma almenningi til góða.

Grænlenski þingmaðurinn Debora Kleist segir að í heimalandi hennar sé jafnframt samstaða um að auðlindir á borð við olíu, málma og fisk eigi að vera í eigu almennings og að geri megi ráð fyrir að það verði tekið fram í stjórnarskrá þegar þar að kemur.

Yhteydenotot

Björg Eva Erlendsdóttir
Puhelin +354 563 0786
Sähköposti beva@althingi.is