Tehdyt toimenpiteet
Sisältöä ei ole saatavilla valitsemallasi kielellä, joten se näytetään kielellä islanti.

Landamærin eiga ekki að vera hindranir

11.02.2005

Miðvikudaginn 16. febrúar heldur Norræna stofnunin í Finnlandi (Nifin) umræðufund um landamærahindranir á Norðurlöndum í samstarfi við sendinefnd Finna í Norðurlandaráði og skrifstofu Jan-Erik Enestam samstarfsráðherra Finna. Poul Schlüter fyrrverandi forsætisráðherra Dana og nú sérlegur fulltrúi Norrænu ráðherranefndarinnar í baráttunni gegn landamærahindrunum tekur einnig þátt í fundinum. Hann mun meðal annars ræða þær aðgerðir sem gripið hefur verið til, til þess að fjarlægja landamærahindranir á Norðurlöndum.

Í ár leiða Danir starfið og hefur það verið aukið, mun nú einnig ná til þeirra hindrana sem fyrirtæki þurfa að takast á við, þegar þau starfa þvert á landamæri. Í Formennskuáætlun Dana fyrir árið 2005 er lögð mikil áhersla á þetta verkefni.

Outi Ojala fyrrverandi forseti Norðurlandaráðs setur fundinn. Jan-Erik Enestam samstarfsráðherra Finna mun ræða um pólitískar áherslur Norrænu ráðherranefndarinnar í baráttunni gegn landamærahindrunum, og byggja á skýrslu Ole Norrbacks fyrrverandi samstarfsráðherra Finna um landamærahindranir. Anders Ljunggren aðalritari Norræna félagsins í Svíþjóð og finnski þingmaðurinn Simo Rundgren gera einnig grein fyrir skoðunum sínum á málinu.

Fundinum lýkur með pallborðsumræðum og spurningatíma. Mari Taivainen verður fulltrúi Halló Norðurlanda, sem skráir landamærahindranir og svarar spurningum um norrænar áætlanir þvert á landamæri, og mun hún segja frá starfi Halló Norðurlanda.

Umræðufundurinn um landamærahindranir hefst í þinghúsinu í Helsinki þann 16. febrúar 2005 klukkan 14.00.