Tehdyt toimenpiteet

Norræn ráðstefna um umferðaröryggi

09.06.2005

Fjöldi þeirra sem látast af slysförum í umferðinni í Danmörku, Noregi og Svíþjóð hefur, sem betur fer, minnkað á síðustu árum, en það er enn þörf fyrir frekari aðgerðir til þess að auka umferðaröryggið. Hvernig má nýta nýja tækni til þess að auka umferðaröryggið? Þetta er ein af þeim spurningum sem leitað verður svara við á Norrænni ráðstefnu um umferðaröryggi sem haldin verður í Eigtveds Pakhus í Kaupmannahöfn dagana 15. og 16. júní næstkomandi.

Önnur umræðuefni verða mannlegi þátturinn í umferðaröryggi og mat á því hvaða aðgerðir hafa mest áhrif á það. Flemming Hansen samgöngu- og orkumálaráðherra Danmerkur setur ráðstefnuna þann 15. júní klukkan 10:30.

Ráðstefnunni lýkur þann 16. júní með pallborðsumræðum sem umferðarsérfræðingarnir Rune Elvik frá Noregi, Anders Lie frá Svíþjóð og Ane Lamberg frá Finnlandi auk Sven Krarup Nielsen og Ib Rasmussen frá Danmörku taka þátt í.