Verðandi forseti Finnlands leggur áherslu á norrænt samstarf
Sauli Niinistö, sem kjörinn var forseti Finnlands á sunnudag, leggur áherslu á mikilvægi norræns samstarfs í utanríkisstefnu Finnlands.
Tilkynnt um verðlaunahafa bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs þann 22.mars n.k.
Þann 22. mars tilkynnir dómnefndin hver hlýtur bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs árið 2012.
Ný norræn hugveita á að efla sjávarútvegsumræðuna
Norðurlöndin búa að einstakri færni hvað varðar umhverfi og stjórnun sjávar. En upplýsingar um þessa færni nær ekki inn í opinbera umræðu, að mati fjölda norrænna sjávarútvegssérfærðinga. Nýrri norrænni hugveitu er ætlað að leiðrétta þetta ójafnræði.
Álagsgreina á norræna líkanið
Norrænir jafnaðarmenn og starfsgreinafélög innan Samak eiga frumkvæði að nýju norrænu verkefni. Markmiðið með verkefninu NordMod 2030 er að greina, álagsgreina og gera greiningu á áhrifum þeirra áskorana sem norræna líkanið stendur frammi fyrir.
Forseti Norðurlandaráðs gagnrýnir hvítrússnesk stjórnvöld vegna dauðadóma
Dauðadómur gegn tveimur ungum mönnum í Hvíta-Rússlandi vegna hryðjuverkaárásanna í Minsk árið 2011 er á margan hátt rangur og ekki er hægt að sætta sig við hann, segir Kimmo Sasi, forseti Norðurlandaráðs. Ekki er lengur hægt að breyta dómnum en Sasi biðlar til hvítrússneskra yfirvalda að fullnusta ekki dauðadóminn.
Menntun og rannsóknir auka velferð
Tengsl eru milli þekkingar, heilbrigðis, velferðar og græns hagvaxtar. Norrænir ráðherrar rannsókna- og menntamála vilja efla vöxt og velferð með menntun og rannsóknum.
Kastljósinu beint að börnum og ungmennum með ADHD
Sífellt fleiri börn fá meðferð vegna ADHD á Norðurlöndum. Velferðarnefnd Norðurlandaráðs vill nú láta kanna umfang og mismunandi meðferðarúrræði, bæði sálfræðileg og lyfjatengd.
Heildstæð mynd af norrænni ESB-stefnu
Árleg skýrsla um ESB aðgerðir gæti gagnast norrænni ESB-stefnu. Þetta er mat forsætisnefndar Norðurlandaráðs, sem hefur samþykkt að beina tilmælum til Norrænu ráðherranefndarinnar um að gera slíka skýrslu.
PISA-könnunin verður að mæla sköpunarkraft og frumkvöðlastarf
Sköpunarkraftur, nýsköpun og PISA-kannanir verða að haldast í hendur í skólanum. Því er þörf á betri greiningaraðferðum til þess að efla sköpunarkraft að mati menningar- og menntanefndar Norðurlandaráðs.
Sasi: Útflutningsmöguleikar felast í velferðarþjónustunni
Kynna ætti bestu velferðarþjónustu í heimi og flytja hana út. Kimmo Sasi forseti Norðurlandaráðs telur tækifæri felast í þjónustulausnum og –ferlum sem nýtt eru í norræna heilbrigðiskerfinu.
