- Hernaðarsamstarf nauðsynlegt milli Norðurlanda
Anne-Grete Strøm-Erichsen (Ap) varnarmálaráðherra Noregs sagði í umræðum um varnarmál þann 30.04.13, sem haldnar voru að frumkvæði Norðurlandaráðs, að þörf væri á sameiginlegu norrænu varnarsamstarfi. Að mati Erichsen er varnarsamstarf ekki einungis mikilvægt, heldur nauðsynlegt. Norrænu ríkisstjórnirnar vinna nú að því að þróa og efla The Nordic Defence Cooperation (NORDEFCO).