Blogg
Hér er listi yfir blogg þar sem norræn sjónarmið eru í brennidepli eða þar sem fjallað er um málefni og umræðu sem er á döfinni á Norðurlöndum. Sum blogg eru skrifuð út frá alþjóðlegum sjónarmiðum, en hafa verið valin vegna þess að þau hafa gefið tóninn í norrænum bloggheimum og umræðum.
Alþjóðleg blogg
Þýsku fréttamennirnir Clemens Bomsdorfs og Elmar Jungs blogga á þýsku um Norðurlöndin á HighNorth þar skrifa þeir um allt mögulegt frá poppmenningu og byggingalist til fjárlmála og stjórnmála.
Á vefsíðunni World Economic Forumsem er meðnorræna leitarvél er hægt að lesa hvað greinahöfundar WEF hafa að segja um Norðurlöndin. WEF bloggið er á ensku.
Manuel Velascos bloggar á spænsku á vefsíðunnielcaminodelnorte en á þeirri síðu er umfjöllun um norræna menningu og sögu og má þar m.a. sjá fjölda myndskeiða frá Norðurlöndunum. Velascos er rithöfundur sem hefur skrifað fjölda bóka um norræna menningu og sögu.
Terri Mapes Scandinavia Travel Blog er góð og vel uppfærð ferðabloggsíða á ensku fyrir þá sem vilja ferðast innan eða til Norðurlanda og Skandinavíu.
Lifeiscarboner metnaðarfull tískubloggsíða á ensku, þar sem fjallað er um hönnun, tísku og menningu á Norðurlöndum.
Arctic Startup er fyrirtæki sem rekur vefsíðu og bloggsíðu á ensku um ný fyrirtæki á sviði stafrænna fjölmiðla og tækni á Norðurlöndum.
Kulturkontakt Nord vefsíðan, safnar saman áhugaverðum bloggskrifum og verkefnum um norræna menningu og listir. Bloggin eru yfirleitt á ensku en í einstaka tilvikum einnig á skandinavísku.
Svíþjóð
Allar eftirfarandi bloggsíður eru á sænsku.
Bloggsíða ráðherra norræns samstarfs og frjálsrar verslunar Ewa Björling .
Politometern er vefgátt þar sem safnað er saman greinum bloggara sem skrifa um stjórnmál í Svíþjóð, oft fjalla þeir um málin út frá norrænum sjónarmiðum.
Makthavare.se er blanda af fréttabréfi og bloggsíðu, sem unnin er í samstarfi við dagblaðið Fokus. Vefsíðan vistar einnig bloggsíðuna almedalsbloggen.se í Almedalsvikunni á Gotlandi.
Sænski utanríkisráðherrann, Carl Bildt, bloggar á síðunni „Alla dessa dagar" um stjórnmál og þróunina á Norðurlöndum og á alþjóðavettvangi.
Þingmaðurinn Ann-Kristine Johansson beinir á bloggsíðu sinni sjónum að norrænum málefnum út frá sjónarhóli íbúa Värmlands og að stjórnsýsluhindrunum sem verða til þegar ferðast er til vinnu yfir landamæri milli Noregs og Svíþjóðar.
Sagnfræðingurinn og hagfræðingurinn Johan Norberg, er með bloggsíðu þar sem hann birtir greinar sem oft eru einnig birtar í fjölmiðlum og verða leiðandi í umræðum um efnahagsmál og samfélagsþróun.
TV4-fréttabloggið politikerbloggen.se birtir pólitískar fréttir með breiðri umfjöllun, meðal annars um norræn málefni.
Þingmaðurinn (M) Hans Wallmark bloggar á síðu sinni valblogg um þátttöku stjórnmálamanns og fulltrúa í Norðurlandaráði í norrænum málefnum.
Kulturbloggen fjallar um sænskt og norrænt menningarlíf.
Peter Englunds akademiblogg er blogg ritara Sænsku akademíunnar en hann er sá sem tilkynnir um hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í bókmenntum ár hvert.
Nordenbloggen fjallar um málefni sem eru á döfinni hjá Norræna félaginu.
Finnland
Öll eftirfarandi blogg eru á finnsku. Bloggsafn
Helsingin Sanomats veitir góða innsýn í blogg finnskra blaðamanna.
Grænir í Finnlandi blogga á síðunni vihreablogi og þar má fylgjast með pólitískri umræðu í Finnlandi.
Alexander Stubb, Evrópu- og utanríkisráðherra Finnlands og samstarfsráðherra, fjallar í bloggi sínu um ólíkar hliðar finnskrar utanríkisstefnu.
Paavo Arhinmäki er menningar- og íþróttaráðherra of formaður Vinstribandalagsins.
Ísland
Islandsbloggen fylgist með og fjallar um íslenskar fréttir jafnt efnahags- og menningartengdar fréttir, smáar jafnt sem stórar. Bloggið er á sænsku og er góð upplýsingaveita um Ísland fyrir þá sem vilja ferðast til landsins eða hafa áhuga á landinu.
Vefsíða Sivjar Friðleifsdóttur fyrrum samstarfsráðherra er á íslensku, þar færir hún dagbók, bloggar, birtir ræður og greinar.
Danmörk
Allar eftirfarandi bloggsíður eru á dönsku.
Á bloggsíðunniAltandetlige skrifa nokkrir danskir hagfræðingar um efnhagsmál og stjórnmál út frá dönskum sjónarhóli og tekst þeim þar að vera bæði málefnalegir og almennir.
Jyllandsposten og Berlingske tidende birta bloggsíður danskra bloggara sem spanna stjórnmálin frá vinstri til hægri. Blogghlutar dagblaðanna ná til flestra sviða innan menningar, efnahagsmála, stjórnmála og samfélagsins í heild, oft frá dönskum sjónarhóli.
Noregur
Allar eftirfarandi síður eru á norsku.
Aftenposten safnar saman öllum leiðandi bloggskrifurum í Noregi á einn stað.
Kjetil Løsets blogg í TV-2 fréttunum er góð leið til að birta pólitískar fréttir og samantekt á stöðunni í Noregi.
Kristin Clemet, formaður frjálslyndu hugveitunnar Civita, er með bloggsíðu um þróunina og samfélagslegar hugmyndir, og norsk og alþjóðleg stjórnmál.
Paul Chaffey skrifar á bloggsíðu sinni um fjármál, stjórnmál og fylgist með því sem er að gerast í heiminum með norskum augum.
Norski fornleifafræðingurinnFrans-Arne Stylegar bloggar um fornleifarannsóknir á Norðurlöndum. Á síðunni eru einnig fjölmargar krækjur á blogg- og vefsíður um fornleifarannsóknir.
Tillögur
Ef þér finnst að það vanti bloggsíðu einhvers sem þú veist að bloggar um norræn málefni, vinsamlega láttu okkur vita með því að senda okkur póst á webredaktionen@norden.org.
