12/07 2011
Danir, Finnar og Íslendingar hafa enn ekki staðfest nýjan sáttmála Sameinuðu þjóðanna sem á að stöðva dreifingu hættulegra lífvera um heimshöfin. Þetta stendur í vegi fyrir því að sáttmálinn taki gildi og veldur fulltrúum í Norðurlandaráði áhyggjum.
23/07 2011
Alexander Stubb er samstarfsráðherra Finna en þeir gegna nú formennsku í Norrænu ráðherranefndinni. Djúp sorg og samúð með norskum almenningi er honum efst í huga en hann bendir einnig á hve mikilvægt er á stundu sem þessari að láta ekki hugfallast heldur beina kröftunum í að verja það umburðarlyndi sem einkennir hin opnu samfélög Norðurlanda.
23/07 2011
Henrik Dam Kristensen forseti Norðurlandaráðs vottar norsku þjóðinni samúð sína vegna harmleiksins sem átti sér stað í stjórnarráðshverfinu í Ósló og sumarbúðum ungra jafnaðarmanna á Útey.
22/07 2011
Oddvitar norræns samstarfs á þessu ári, þeir Alexander Stubb samstarfsráðherra formennskuríkisins Finnlands og danski þingmaðurinn Henrik Dam Kristensen sem gegnir embætti forseta Norðurlandaráðs, votta norsku þjóðinni dýpstu samúð sína. Þeir segja brýnt að standa vörð um umburðarlyndi og hið opna norræna samfélag og leggja ríka áherslu á að Norðmenn séu ekki einir á ögurstundu sem þessari.
15/07 2011
Norðurlöndin eiga að sýna gott fordæmi og og koma í veg fyrir að matvöru sé hent, að mati danska þingmannsins Ole Vagn Christensen, sem einnig á sæti í Norðurlandaráði. Hann hefur því beðið norrænu ríkisstjórnirnar um yfirlit yfir matvörur sem fari til spillis og aðgerðir sem grípa má til að koma í veg fyrir það.