Norðurlönd í vikunni - 27/05 2012
Fréttir
Samstarfsráðherra Dana: Norðurlönd og Evrópusambandið vega hvort annað upp
06/10 2011
„Það ætti ekki að tala um ESB og norrænt samstarf sem gagnstæða valkosti heldur um bæði og, þar sem þessar tvær gerðir ríkjasamstarfs bæta hvor aðra upp” , sagði Manu Sareen, nýr samstarfsráðherra Dana, þegar hann tók við embætti.
Aukið norrænt samstarf um menningar- og heilbrigðismál
05/10 2011
Í dag, fimmtudaginn 6. október, verður Norrænu ráðherranefndinni og Norðurlandaráði afhent ályktun um aukið norrænt samstarf um menningar- og heilbrigðismál. Ályktunin verður afhent á ráðstefnunni „Menning fyrir lifið“ (Kultur för livet) 2011. Lena Adelsohn Liljeroth, menningar- og íþróttamálaráðherra Svíþjóðar, er þar fulltrúi Norrænu ráðherranefndarinnar. Fulltrúar Norðurlandaráðs verða þær Cristina Husmark Pehrsson úr forsætisnefnd Norðurlandaráðs og Siv Friðleifsdóttir, formaður velferðarnefndar Norðurlandaráðs.
