Document Actions

10 milljónir til útflutnings á umhverfistækni

Norræna nýsköpunarmiðstöðin ætlar að veita 10 milljónum norskra króna til þess að auka útflutning á norrænni umhverfistækni. Umsóknarfrestur um styrki rennur út þann 16. júní.

16/05 2006

Þeir sem geta sótt um styrkina eru vísindamenn, stofnanir, fyrirtæki og samtök sem stuðla að aukinni nýsköpun, þróun og útflutningi á norræni umhverfistækni.

Norræn umhverfistækni á að vera hrein, öflug og samkeppnishæf og markmiðið með auglýsingu Norrænu nýsköpunarmiðstöðvarinnar er að markaðssetja það besta sem Norðurlöndin hafa uppá að bjóða á þessu sviði.

Átakinu er hrint af stað vegna þess að hindranir fyrirfinnast sem standa í vegi fyrir nýsköpun og útflutningi á umhverfistækni. Þær er hægt að fjarlægja og þar með þróa samkeppnishæfar lausnir sem bæta umhverfið á heimsvísu. Markaðurinn fyrir umhverfistækni á heimsvísu er talinn vera um 550 milljarðar evra á ári, en Norðurlöndin flytja út umhverfistækni fyrir rúmlega 11 milljarða evra árlega.

Norræna nýsköpunarmiðstöðin telur góða möguleika á að auka þennan útflutning, meðal annars með því að mynda fyrirtækjaklasa sem geta unnið saman að betri lausnum.