Document Actions

12 tilnefndir til tónlistarverðlauna Norðurlandaráðs

Dómnefnd hefur valið 12 tónlistarmenn, söngvara og hljómsveitir og tilnefnt til tónlistarverðlauna Norðurlandaráðs árið 2013.

22/02 2013

Mezzoforte

Ljósmyndari
Ulla Binder

Tilnefndir eru:

DANMÖRK

Theatre of Voices, söngsveit

Grammy-verðlaunahafinn Theatre of Voices er ein af fremstu söngsveitum Evrópu. TOV flytur áræðin og frumleg verk á mjög listrænan og tæknilegan hátt. Verkin sem um ræðir spanna allt frá pólýfón tónlist til nútíma tónlistar danskra og erlendra tónsmiða; Stockhausen, Berio, Pärt, Reich, Bent Sørensen og Gudmundsen-Holmgreen.

 www.theatreofvoices.com

Efterklang, hljómsveit

Þessi framsækna, metnaðarfulla og hugmyndaríka hljómsveit - sem virta enska hljómplötuútgáfan 4AD kallar „frumkvöðla tilraunapopp tónlistar í Danmörku“, hefur hlotið lof jafnt danskra og erlendra fjölmiðla. Í þau tólf ár sem sveitin hefur starfað, hefur hún aftur og aftur tekist á við stór verkefni, bæði í tengslum við upptökur og útfærslur.

 www.efterklang.net

FINNLAND

Pekka Kuusisto, fiðluleikari

Finnski fiðluleikarinn Pekka Kuusisto er alþjóðlega virtur bæði sem einleikari og hljómsveitarstjóri. Hann er þekktur fyrir nýstárlega túlkun á verkum. Pekka er einnig mikill aðdáandi nýrrar tónlistar, og vinnur reglulega með nýjum tónsmiðum. Veturinn 2012/13 heimsfrumflytur hann fiðlukonsert Sebastians Fagerlund, sem er saminn fyrir hann að ósk Tampera Philharmonic Orchestra. http://www.harrisonparrott.com/artist/profile/pekka-kuusisto

Kimmo Pohjonen, harmónikkuleikari

Kimmo Pohjonen er talinn einn af hæfustu harmónikkuleikurum heims. Kimmo er harmónikkuleikari og tónsmiður, með sérstaka hæfileika og ímyndunarafl, sem hefur starfað í ríflega tuttugu ár á sviði rokk-, þjóðlaga-, framúrstefnu-, spuna-, klassískrar-, dans- og leikhústónlistar. Árið 1996 hóf hann einleiksferil sinn með solo 5-row verkefni sínu, þar sem hann lék framúrstefnu og hefðbundin verk, lifandi lykkjur með áhrifa- og kraftmikilli litríkri sviðsframkomu og ljósa- og hljóðstjórnun.

www.kimmopohjonen.com

FÆREYJAR

Eivør Pálsdóttir, söngkona

Eivør er söngkona og tónsmiður sem ólst upp í Götu, litlu þorpi í Færeyjum. Eivør hefur mjög sérstaka rödd og þó hún eigi rætur í færeyskum söngvum, spannar áhugasvið hennar margar gerðir tónlistar allt frá rokki, djass, þjóðlaga- og popptónlistar í klassíska evrópska tónlist. Hún hætti í skóla 16 ára til að helga sig því sem henni fannst skemmtilegast: syngja og semja tónlist. Ellefu árum, átta plötum og fjölda verðlauna seinna, er hún orðin ein af skærustu stjörnum Norður-Atlantshafs svæðisins. Sérstaða hennar er ekki einvörðungu einstök röddin, heldur einnig listræn tjáning hennar á léreft, í sögum, ljóðagerð og samsetningu.

www.eivor.com

ÍSLAND

 

Nordic Affect, kammersveit

Kammersveitin Nordic Affect var stofnuð árið 2005 með það að markmiði að flytja tónlist frá 18. og 19. öldinni auk þess að flytja nútímatónlist. Tónlistarmennirnir eiga þá sameignlegu ástríðu að nálgast þekkt tónlistarform frá ólíkum sjónarhornum og fara ótroðnar slóðir. Á dagskrá tónlistarflutnings þeirra á Íslandi og í Evrópu hefur verið allt frá danstónlist frá 18. öldinni að spennandi nútíma raftónlist, og hefur sveitin hlotið mikið lof gagnrýnenda.

www.nordicaffect.com

Mezzoforte,hljómsveit

Velgengni þeirra kom algjörlega á óvart á sínum tíma. Árið 1983, þegar lag þeirra Garden Party varð vinsælt um allan heim voru strákarnir fjórir frá Íslandi rétt að ná fullorðinsaldri. Alveg síðan þá hefur Mezzoforte verið talin ein mikilvægasta fusion hljómsveit Evrópu. Árið 2012 fagnar sveitin 35 ára afmæli og er enn í fullu fjöri, Nýi diskurinn Islands sýnir hvernig sveitin hefur þroskast á tónlistarsviðinu og er enn ein rós í hnappagatið. www.mezzoforte.com www.mezzoforte.com

NOREGUR

 

Håkon Austbø, píanó

Håkon Austbø hefur mótað nútímaskilning á píanótónlist 20. aldarinnar. Hann hefur í nær hálfa öld verið í fararbroddi, á heimsvísu, þeirra sem túlkað hafa tónlist eftir Skrjabin, Messiaen og Debussy. Hann hefur unnið með Messiaen, frumflutt verk fjölda núlifandi tónsmiða, leikið undir stjórn hljómsveitarstjóra eins og Haitink, Tabachnik, Eötvös og Jansons og með hljómsveitum eins og Nieuw Ensemble, Concertgebouwerkest og  Ensemble Intercontemporain. www.austbo.info

Maja Ratkje, söngkona

Tónlist Maja S.K. hefur hlotið viðurkenningu þvert á hefðbundnar tónlistargreinar, bæði annarra listamanna og gagnrýnenda. Lifandi raddtúlkun er kjarninn í listflutningi Ratkje, hvort heldur hún leikur einleik með raftónlist eða tengir röddina inn í spunaverk sem söngkona. Ratkje skar sig snemma úr á alþjóðavettvangi bæði sem söngkona og tónsmiður.

www.ratkje.com

SVÍÞJÓÐ

Trio ZPR, stokhljóðfæratríó

Cecilia Zilliacus (fiðla), Johanna Persson (altfiðla) og Kati Raitinen (selló) mynda saman með storkhljóðfæratríói sínu eina bestu og mest skapandi kammersveitina í Svíþjóð. Frá stofnun sveitarinnar árið 1999 hefur ZPR sýnt fram á úthald og samstöðu gagnvart tónlistargreininni. Auk hefðbundinnar tónlistar ZPR hefur sveitin sífellt verið að þróa verkefnalistann og vinnur oft í samstarfi við óvænta gestaflytjendur. www.zpr.se

The Knife, raftónlistartvíeyki

The Knife er listrænt samstarf systkininna Dreijer, og hafa þau starfað saman síðan 1999.

Þau flytja raftónlist sem nýtir sér jafnt gamla popptónlist og framsækna raftónlist, listræna tónlist og myndbandalist í spaugfullum grímuleik. Áleitið listaverkefni sem var flutt í fyrsta sinn árið 2006 á leiksviði eftir að systkinin slógu í gegn með plötu sinni Silent Shout; en platan hlaut sex (!) sænsk Grammis-verðlaun.

www.theknife.net

ÁLANDSEYJAR

Vladimir Shafranov, píanó

Fæddur í Pétursborg árið 1948. Byrjaði að spila á píanó þegar hann var 5 ára, nam m.a. við Rimsky-Korsakov tónlistarskólann. Gaf út sína fyrstu plötu árið 1971, hún seldist í yfir milljón eintökum. Starfaði í Finnlandi 1974-83, kenndi þar m.a. við Sibelíusarakademíuna. Flutti til New York 1983, var sjálfstæður píanisti með fremstu djasstónlitarmönnum New York borgar þeirra á meðal Dizzy Gillespie, Johnny Griffin og Benny Golson.

Frekari upplýsingar um þá sem tilnefndir eru á www.musikpris.org/

Tilkynnt verður hver hlýtur tónlistarverðlaun Norðurlandaráðs þann 30. október í Ósló, verðlaunin verða afhent á Norðurlandaráðsþinginu.

Tengiliðir

Louise Hagemann
Sími +45 21 71 71 41
Tölvupóstur loha@norden.org