Document Actions

15 ára samstarf Norðurlandanna og Litháen

Upplýsingaskrifstofa Norrænu ráðherranefndarinnar í Litháen fagnar 15 ára afmæli þann 23. maí. Í tilefni dagsins verður haldin námstefna um samþættinguna á Eystrasaltssvæðinu. Og hvernig haga megi samstarfinu næstu 15 árin.

22/05 2006


Teppo Heiskanen forstöðumaður norrænu skrifstofunnar í Vilníus setur námstefnuna á Reval Hotelinu í Vilníus. Berti Andnor samstarfsráðherra Svía verður meðal frummælenda. Þá mun Jón Baldvin Hannibalsson, fyrrum utanríkisráðherra, segja frá upphafi þessa tímamótasamstarfs á árinu 1991.

Laima Liucija Andrikien þingmaður á Evrópuþinginu og Per Unckel framkvæmdastjóri Norrænu ráðherranefndarinnar munu einnig leggja sitt af mörkum.

Skrifað var undir samkomulag um upplýsingaskrifstofuna í febrúar árið 1991. Þeir sem undirrituðu það voru Valdermaras Katkus, þáverandi varautanríkisráðherra og Thor Pedersen þáverandi samstarfsráðherra Dana, nú fjármálaráðherra. Fyrsti forstöðumaður skrifstofunnar var Anders Kreuger. Hann lagði mikla áherslu á að hægt væri að bjóða stúdentum námsferðir til Norðurlanda. Á þessum tíma var þetta eini möguleiki ungs fólks í Litháen að kynnast grannríkjunum.