20 flokkar vilja auka skilvirkni Norðurlandaráðs
Miðjuhópurinn í Norðurlandaráði hefur lagt fram nýja stefnuskrá sem 20 flokkar á miðju norrænna stjórnmála standa að. Þeir vilja afnema stjórnsýsluhindranir á landamærum og auka skilvirkni í norrænu samstarfi.
Simo Rundgren þingmaður frá Finnlandi og formaður Miðjuhópsins kynnti stefnuskrána fyrir blaðamönnum mánudaginn 30. október, ásamt Kristian Pihl Lorentzen varaforseta Norðurlandaráðs,.
Ekki var auðvelt að sameinast um sameiginlega stefnuskrá fyrir flokkana 20, en við vorum sammála um framtíðarsýn Miðjuhópsins í Norðurlandaráði, sagði Simo Rindgren
Markmiðið er að auka skilvirkni í Norðurlandaráði sagði Kristian Pihl Lorentzen sem kynnti framtíðarsýnina. Miðjuhópurinn vill að Norðurlönd hafi forgöngu um grannsvæðasamstarf, verði í fararbroddi í samstarfi við grannríkin og að styrki norðlægu víddina í ESB. Pihl Lorentzen undirstrikaði mikilvægi samstarfsins við Rússa um umhverfismál sem tengjast verndun Eystrasaltsins og Heimskautssvæðisins.
Fjórða framtíðarsýn Miðjuhópsins er að Norðurlönd verði menningarleg orkumiðstöð og að lítil lönd hafi sitthvað gott fram að færa í Evrópu. Það er gríðarlega mikilvægt að á Norðurlöndum fari fram vinabæjarsamstarf sem kenna megi öðrum.
Miðjuhópurinn leggur einnig áherslu á þau sameiginlegu gildi sem flokkarnir 20 eru sammála um. Að mannfólkið sé sett í brennidepil, að allar manneskjur séu jafn mikils virði og að umburðarlyndi og virðing fyrir öðrum sé grundvallaratriði.
Að auki er það markmið Miðjuhópsins að Norðurlönd eigi að vera án landamæra og að styrkja beri norræna velferðarlíkanið, að menningin verði límið sem heldur norrænu samstarfi saman og að það byggist á sjálfboðastarfi. Umhverfismál eru ofarlega á dagskrá og vill hópurinn vinna að loftslagsmálum, hreinsun Eystrasalts, endurnýjanlegum orkugjöfum og að því að minnka þörfina fyrir eldsneyti sem unnið er úr jörðu.
