Document Actions

20.000 Svíar ferðast til vinnu yfir landamæri

14/02 2005

Svíar ferðast til vinnu yfir landamæri í mun meira mæli en nágrannar þeirra á Norðurlöndum, samkvæmt fyrstu norrænu úttektinni sem gerð hefur verið. Árið 2001 ferðuðust flestir frá Svíþjóð til Noregs eða rúmlega 13.300 sem var rúmlega helmingur af öllum sem ferðuðust til vinnu yfir landamæri á Norðurlöndum.

Hagstofur í Svíþjóð, Danmörku, Finnlandi og Noregi hafa nú í fyrsta sinn getað reiknað þann fjölda fólks sem býr í einu landi en hefur aðalstarf í öðru. Rannsóknin var gerð að tilstuðlan Norrænu ráðherranefndarinnar. Þetta er í fyrsta sinn sem hægt er að sjá tölulegar upplýsingar um ferðalög vegna vinnu yfir landamæri á Norðurlöndum, fyrir mörg lönd í einu.