Document Actions

’’Stórt verkefni fyrir Norðurlönd’’

Alþjóðamiðstöð Olofs Palmes í Stokkhólmi stendur laugardaginn 14. janúar fyrir málþingi um hvaða hlutverk Norðurlönd sem Evrópuríki geti gegnt á alþjóðavettvangi. Norrænu ríkin hafa valið ólíkar leiðir í samskiptum við Evrópusambandið og Atlantshafbandalagið.

10/01 2006

Er norrænt samstarf ”út úr myndinni” eins og staðhæft var í leiðara í sænska dagblaðinu Dagens Nyheter á haustmánuðum? Eða hafa Norðurlönd og hin norræna vídd, þvert á móti fengið meira vægi sem fyrirmynd að endurnýjun í Evrópusamstarfinu?

Fjölmargir forystumenn í norrænum stjórnmálum munu leita svara við þessu á málþinginu á laugardag. Meðal fyrirlesara eru Ole Stavad forseti Norðurlandaráðs, Thorbjörn Jagland, fyrrverandi forsætisráðherra, flokksformaður og þingforseti í Noregi, Kimmo Kiljunen, formaður utanríkisnefndar finnska þingsins m.m. og Ingvar Carlsson fyrrverandi forsætisráðherra Svíþjóðar.

Ingvar Carlsson hvetur til þess í grein á heimasíðu Palme-miðstöðvarinnar að norrænt samstarf verði eflt.

Formælendur nýfrjálshyggjumanna halda því fram að losa þurfi um regluverk hjá Evrópusambandinu og láta markaðinn ráða meiru á kostnað stjórnmálamannanna. Ég lít svo á að Norðurlönd standi andspænis því stóra verkefni að sýna fram á að það eru til aðrar leiðir til að tryggja framfarir, leiðir þar sem einstaklingurinn fær að njóta sín, skrifar Ingvar Carlsson.