Document Actions

”Finnlandssænska aðaltungumál í norrænu sambandsríki”

Sú sænska sem töluð er í Finnlandi, þ.e.a.s. finnlandssænskan, ætti að vera megintungumálið í norrænu sambandsríki. Þetta er skoðun Jan Vapaavuori samstarfsráðherra Finnlands sem sat námstefnu um tungumál sem Norræna stofnunin í Finnlandi stóð fyrir á þriðjudag.

Dec 02, 2009
Jan Vapaavuori

Jan Vapaavuori

Ljósmyndari
Johannes Jansson/norden.org

Samkvæmt Vapaavuori er finnlandssænskan það tungumál í Skandinavíu sem skilst best á Norðurlöndum og því ætti hún að vera aðaltungumálið í norrænu sambandsríki. Vapaavuori er því hlynntur umdeildri tillögu um sambandsríki á Norðurlöndum.

Sænski sagnfræðingurinn Gunnar Wetterberg setti nýlega fram tillögu um norrænt sambandsríki í grein í dagblaðinu Dagens Nyheter. Tillagan kveikti líflegar umræður um öll Norðurlönd þegar greinin birtist í október, í tilefni af Norðurlandaráðsþingi. Wetterberg telur að norrænt sambandsríki myndi meðal annars að styrkja rödd Norðurlandanna í alþjóðasamfélaginu.

Jan Vapaavuori telur einnig að margir fari á mis við við norrænt samstarf ef talað er annað tungumál en móðurmál viðkomanda Því ætti að leggja áherslu á að efla skandínavískan málskilning á Norðurlöndum. Ráðherrann nefndi sérstaklega þrjú atriði sem mæla með tungumálasamstarfi: í fyrsta lagi þverrandi sænskukunnáttu í Finnlandi, í öðru lagi hversu erfitt það er fyrir Íslendinga og Finna að tala skándínavísk tungumál nægilega vel og í þriðja lagi þá staðreynd að oft reynist torvelt að skilja danskt talmál.

Vapaavuori vill standa vörð um tvítyngi Finna og því þurfi að sjá til þess að börn og ungt fólk læri sænsku og skilji hversu gagnlegt er að kunna sænsku.

Tungumálasérfræðingarnir Pirkko Nuolijärvi og Mikael Reuter tóku einnig þátt í tungumálanámstefnunni á þriðjudag.

Norræna stofnunin í Finnlandi, Nifin, er norræn stofnun undir hatti Norrænu ráðherranefndarinnar og norrænn fundarstaður í miðbog Helsinki.

Grein Gunnars Wetterberg

Heimasíða Nifins

Skráning

Aðeins skráðir þátttakendur geta setið fundinn. Sendið ósk um skráningu til Henrik Killianders á netfangið heki@norden.org

Tengiliðir

Gun Oker-Blom
Sími +358 09-68 40 56 20
Tölvupóstur gun.oker-blom@nifin.helsinki.fi

Tengt efni
  • Undersøgelse af det Nordiske samarbejde

    Undersøgelse af den nordiske befolknings kendskab og holdning til Nordisk Råd og Nordisk Ministerråd og et særligt forstærket nordisk samarbejde.

  • Sambandsríkið Norðurlönd

    Í nýrri bók Norðurlandaráðs og Norrænu ráðherranefndarinnar, Sambandsríkið Norðurlönd (Förbundsstaten Norden) færir sagnfræðingurinn og samfélagsrýnirinn Gunnar Wetterberg rök fyrir einni athyglisverðustu samfélagshugmynd þessarar aldar – að myndað verði sambandsríki Norðurlanda. Raunverlulegt sambandsríki sem hefði umsjón með utanríkis- og varnarmálastefnu, fjármálum og öllum mikilvægum málefnum innan löggjafarinnar allt frá innflytjenda- til félagsmálastefnu.