Document Actions

”Sænskukunnátta forsenda öflugs norræns samstarfs"

Efla verður skandínavískan málskilning á Norðurlöndum. Það er skoðun Jan Vapaavuori samstarfsráðherra Finnlands.

21/01 2010
Jan Vapaavuori
Ljósmyndari
Johannes Jansson/norden.org

-Grundvallarhugsunin í norrænu samstarfi er að Norðurlöndin geti í sameiningu áorkað meiru en hvert land fyrir sig. Undirstaða samstarfsins er sameiginleg saga og menning, svipuð samfélagsleg gildi og að vissu marki sameiginleg tungumál, sagði Vapaavuori í ræðu sinni á ráðstefnu sem haldin var í tilefni af því að tvær aldir eru liðnar frá því að ríkjasambandi Finnlands og Svíþjóðar lauk. Ráðstefnan var haldin í Hanaholmen menningarmiðstöðinni fyrir Svíþjóð og Finnland í vikunni.

Dregið hefur úr norrænum málskilningi eftir því sem vægi enskunnar hefur aukist. Vapaavuori ítrekar að mikið muni tapast í norrænu samstarfi ef enska verður alfarið notuð sem samskiptatungumál. Í staðinn ætti að efla norrænan málskilning.

-Markmiðið er að allir Norðurlandabúar geti átt samskipti á einu skandíanavísku tungumáli, sagði Vapaavuori.

Merkisárið 1809 er ríkisstjórnarverkefni í minningu þess að 200 ár eru síðan að 600 ára ríkjasambandi Finnlands og Svíþjóðar lauk. Markmiðið með Merkisárinu 1809 hefur verið að efla samkennd milli Finnlands og Svíþjóðar með því að vekja athygli á sameiginlegum menningararfi og sögu landanna.

Fréttatilkynningin öll

Tengiliðir

Anna-Christina Niesvaara starfsmaður, sími +358-9 432 4130 farsími 358+50 574 1657