Document Actions

„Aldrei aftur Tjernobyl”

Áhætta sem fylgir endurvinnslu geislavirks úrgangs er gífurleg. Það ætti því að finna aðrar leiðir við meðferð geislavirks úrgangs. Þetta sagði sænski þingmaðurinn Jan Lindholm, fulltrúi í Norðurlandaráði, á ráðstefnu um kjarnorkuúrgang, sem haldin var í Brussel á miðvikudag. Á ráðstefnunni var sjónum einkanlega beint að umdeilda breska kjarnorkuendurvinnsluverinu í Sellafield.

03/03 2010
Jan Lindholm
Ljósmyndari
Magnus Fröderberg/norden.org

Sellafield í Norður-Englandi er talið vera hættulegasta iðnaðarsvæði í Evrópu. Þar er bæði geymdur kjarnorkuúrgangur og hann endurunninn. Jan Lindholm líkir saman Sellafield og slysinu við Tjernobyl árið 1986, þar sem ekki einvörðungu nágrenni kjarnorkuversins, heldur einnig Norðurlöndin í þúsunda kílómetra fjarlægð urðu fyrir áhrifum.

Á sumum svæðum Norðurlanda hefur þurft að setja höft á neyslu hreindýrakjöts og mjólkur. Ég tel að allra leiða verði að leita til að minnka áhættu sem fylgir kjarnorkuúrganginum í Sellafield. Það þýðir með öðrum orðum að það verður að minnka úrganginn, segir Jan Lindholm sem er fulltrúi í umhverfis- og auðlindanefnd Norðurlandaráðs.

Norðurlöndin hafa látið til sín taka í málefnum sem varða Sellafield. ekki hvað síst innan Norðurlandaráðs, samstarfsvettvangs norrænu þingana. Á ráðstefnunni í Brussel á miðvikudag voru mættir fulltrúar ESB, Norðurlandanna og Sellafield auk fulltrúa umhverfissamtaka til að ræða um kjarnorkuúrgang.

Tengiliðir