„Eystrasaltssvæðið getur haft áhrif á framtíð ESB“
Halldór Ásgrímsson, framkvæmdastjóri Norrænu ráðherranefndarinnar, og Uffe Ellemann-Jensen, stjórnarformaður Baltic Development Forum, vilja auka samstarf ríkja sem eiga land að Eystrasalti. Í grein eftir þá sem birtist í dagblöðum nokkurra landa í dag benda þeir á ýmis málefni sem þörf er á að auka samstarf um í ljósi fjármála- og efnahagskreppunnar.
Efla þarf samkeppnishæfnina og hlúa að nýsköpun, bæta þarf markaðssamhæfingu og jafnframt þurfum við að vera betur undirbúin undir alþjóðlegar fjármálakreppur. Þetta eru meginlínurnar í tillögunum sem þeir leggja fram. Jafnframt segja þeir Halldór Ásgrímsson og Ellemann-Jensen um þátttöku Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna í G-20:
„Norðurlönd og önnur ríki við Eystrasalt þurfa að skapa sér sameiginlega framtíð. Um fimmtungur íbúa Evrópusambandsins býr við Eystrasaltið og uppbygging á svæðinu hefur því áhrif á framtíð þess. Þess vegna ættum við að hafa pólitísk áhrif þar sem ákvarðanir eru teknar. Þetta getum við gert í gegnum ESB, en hagsmuni Eystrasaltssvæðisins þarf að tryggja á enn breiðari alþjóðavettvangi. Umræðan hófst í framhaldi af tillögu Jonas Gahr, Störe utanríkisráðherra Noregs, um að Norðurlönd og Eystrasaltsríkin fái fulltrúa í G-20, segja greinahöfundar í formála.
Norræna ráðherranefndin hefur mikilvægu hlutverki að gegna í uppbyggingu á Eystrasaltssvæðinu og hefur haft mikil áhrif á Eystrasaltsstefnuna sem reiknað er með að verði kynnt á fundi Evrópuráðsins í október. Stefnan mun hafa víðtæk áhrif á velferð, aðgengi og öryggi á öllu Eystrasaltssvæðinu. Halldór Ásgrímsson og Ellemann-Jensen telja að stefnan geti fyrirmynd fyrir svæðasamstarf annars staðar í ESB.
Greinin birtist í tengslum við leiðtogafund Baltic Development Forum, sem nú var haldinn í ellefta sinn og að þessu sinni í Stokkhólmi.
Lesið og hlustið á ræður Fredrik Reinfeldt forsætisráðherra Svíþjóðar, Matti Vanhananen forsætisráðherra Finnlands og Valdis Dombrivskis forsætisráðherra Lettlands um norræna samtarfið og þróunina á Eystrasaltssvæðinu.
Hlusta og horfa á enn fleiri ræður um þróunina á Eystrasaltssvæðinu.
Norræna ráðherranefndin gefur út skýrsluna Stage of the Region Report í tengslum við leiðtogafundinn. Skýrsluhöfundurinn, Christian Ketels var einn af aðalfyrirlesurnum á ráðstefnunni. Hægt er að hlusta og horfa á hann hér.
