„Gott en ekki nógu gott”
Danski jafnaðarmaðurinn Ole Stavad telur að starfið við að ryðja úr vegi landamærahindrunum muni taka mjög langan tíma.
- Við höfum gert ýmislegt á síðustu tveimur árum, en enn er mikið starf fyrir höndum, sagði Stavad og nefndi bankakostnaðinn, flutning á vörum frá Borgundarhólmi sem dæmi um hindranir sem eftir stæðu.
Annað mikilvægt atriði í tengslum við landamærahindranir er málefni þriðja lands borgara, þ.e. fólks sem sest hefur að á Norðurlöndunum og hefur dvalarleyfi en ekki ríkisfang, sagði Stavad.
- Við verðum að leyfa þessu fólki að ferðast óhindrað milli Norðurlandanna og gefa því tækifæri á að starfa á öðru Norðurlandi, sagði Stavad. Sænski samstarfsráðherrann tók undir þetta með honum og vill einnig vinna að lausn þessa máls.
