Hvað er norræna líkanið og hvernig takast norrænu ríkin á við grænan hagvöxt? Í nýju veftímariti frá Norrænu ráðherranefndinni er fjallað um þessi málefni.
Norræna líkanið er rómað um allan heim sem raunveruleg leið að sjálfbærri framtíð. Grænn hagvöxtur er fremst í forgangsröðinni í samstarfi norrænu ríkjanna á komandi árum.
„Norðurlönd - leiðandi í grænum hagvexti“ er verkefni norrænu forsætisráðherranna um grænan hagvöxt sem leitt er af Norrænu ráðherranefndinni. Markmiðið er að skapa norræna lausn á sameiginlegum úrlausnarefnum á ákveðnum sviðum.
Norrænt samstarf er umfangsmesta svæðasamstarf í heiminum og Norðurlöndin sem svæði eru leiðandi alþjóðleg „rannsóknastofa“ í rannsóknum á samstarfi þvert á landamæri. Við viljum vekja athygli á mikilvægum þáttum og einnig kanna nýjar leiðir.
„Green Growth - the Nordic Way“ segir frá ýmsum verkefnum sem norrænu forsætisráðherrarnir hafa átt frumkvæði að og þar verður fylgst með fjölda verkefna á sviði græns hagvaxtar á vegum Norrænu ráðherranefndarinnar.
Tímaritið má lesa á nordicway.org/
Tímaritið er ókeypis og kemur út annan hvern mánuð. Það er hannað fyrir spjaldtölvur en það má einnig lesa á PC/MAC. Það fæst einnig sem PDF. Allar greinar eru á ensku.
Hér er hægt að gerast áskrifandi.
Nánari upplýsingar um verkefnið á norden.org/greengrowth
Á facebook.com/sdnordic eru nánari upplýsingar um verkefni okkar á sviði sjálfbærrar þróunar.
Michael Funch
Tölvupóstur
mifu@norden.org