„Kúl að vera kona í jaðarbyggð“

11.03.18 | Fréttir
Karin Gahnström Jonsson
Takmarkaðir möguleikar á störfum, áhrifum og æðri menntun gerir að verkum að konur yfirgefa jaðarsvæðin á Norðurlöndum. Hvað þarf til að bæði konur og karlar geti átt gott líf á landsbyggðinni? Þetta er efni umræðna sérfræðingahóps sem fram fara á fundi Kvennanefndar Sameinuðu þjóðanna, mánudaginn 12. mars.

Að auka jafnrétti á landsbyggðinni um heim allan og efla stúlkur og konur sem þar eiga heima - það er meginþema fundar Kvennanefndar SÞ, CSW á þessu ári.

Einn af opinberu viðburðunum sem Norðurlöndin standa saman að viðburðurinn:

”Rural realities in the Nordics – leaving men behind?”

Heiti viðburðarins vísar til þess að á Norðurlöndunum yfirgefa konur frekar en karlar jaðarbyggðir til þess að sækja sér menntun í borgunum.

„Það er alltaf kynjavinkill í fólksflutningum. Sá skilningur gætur fært ráðamönnum nýjar hugmyndir um hvað þarf til að veita bæði körlum og konum þær fjárhagsaðstæður sem þau sækjast eftir,“ segir Gary Barker, framkvæmdastjóri samtakanna Promundo, sem stýrir umræðunum.

Þátttakendurnir eru fulltrúar margra norrænna jaðarbyggðarlaga. Aili Keskitalo, forseti samaþingsins í Noregi, Saara Raassina, þingmaður frá Karelen í Finland, Naaja Nathanielsen, forstöðumaður fangelsismálastofnunar Grænlands og Karin Jonsson Gahnström, menningarblaðamaður frá Östersund í Norður-Svíþjóð.

Auk þess tekur Bafana Khumalo þátt í umræðunum, en hann er einn stofnenda samtakanna Sonke Gender Justice í Suður-Afríku.

Kort sem sýna jafnrétti í jaðarbyggðum 

Umræðurnar byggjast á nýjum og einstökum kortum sem sýna jafnréttiskilyrði í norrænum jaðarbyggðarlögum.

Kortin sýna að langt er milli fæðingardeilda í Finnlandi, Norður-Noregi, Norður-Svíþjóð og sums staðar á Íslandi. Þau sýna líka að vinnumarkaðurinn í jaðarbyggðum á Norðurlöndum er kynskiptari en í borgunum.

Karin Jonsson Gahnström gagnrýnir að almenn þjónusta og velferðarþjónusta sé lögð af í jaðarbyggðum og þvingi þannig fólk til að flytjast brott. Hún vill einnig ögra staðalímyndinni af því fólki sem þar á heima.

„Ég vil að konur í jaðarbyggðum séu metnar til jafns við framafólkið í borgunum. Og að þeim finnist þær vera kúl,“ segir Karin Jonsson Gahnström.

Komið í hús SÞ eða hlýðið á umræðurnar á netinu!

  • Fylgist með umræðunum á vefvarpi SÞ 8.15-9.30 að staðartíma (13.15-14.30 á Mið-Evróputíma)
  • Gestir á CSW í húsi SÞ í New York eru velkomnir á umræðurnar í fundarherbergi 12, kl 8.15-9.30 að staðartíma.   
  • Hér má sjá norrænu jafnréttiskortin.