Document Actions

„Lagið til í eigin ranni”

03/11 2004

Inger René frá flokkahópi íhaldsmanna sagði að staðan væri slæm í jafnréttinu í Norðurlandaráði.
-Við eigum enn langt í land til að ná fram jafnrétti í norrænu samstarfi, sagði Inger René og vísaði í tölur sem sýna að meirihluti fulltrúa í fjölda nefnda væru karlar. Í kjörnefndinni eru 5 af 6 karlar og ef okkur er alvara um það að við viljum jafnrétti verðum við að laga til í eigin ranni, sagði René.

Árni Magnússon félagsmálaráðherra vill endurskoða norræna heilbrigðiskerfið.
- Það er mikill munur á heilbrigði kvenna og karla og við verðum að aðlaga heilbrigðiskerfið að þessu, sagði Árni Magnússon. Hann greindi einnig frá því hve vel lögunum um fæðingarorlof á Íslandi hefði verið tekið. 85&#37 af feðrum nýta sér nú þriggja mánaða fæðingarorlof sem þeir eiga rétt á samkvæmt lögunum.