Document Actions

„Neysluhegðun ungs fólks skiptir máli"

Þátttaka í loftslagsmálum frá unga aldri gerir ungt fólk að meðvituðum neytendum. Það er fyrst og fremst mikilvægt að gera unga fólkinu ljóst að dagleg innkaup skipta máli, segir Christine Antorini ráðherra barna- og menntamála Danmerkur, sem stendur ásamt öðrum norrænum menntamálaráðherrum að Norræna loftslagsdeginum 11. nóvember.

Nov 11, 2011
Christine Antorini
Ljósmyndari
Magnus Fröderberg/norden.org

Markhópur Norræna loftslagsdagsins þetta árið eru norrænir nemendur og kennarar, en þema ársins er matur og loftslagsmál. Christine Antorini heldur því fram, að frá 4 til 5 ára aldri geti börn skilið hvernig hráefni og hegðun geti haft áhrif á loftslag. Þegar börnin ná unglingsaldri er mikilvægt að skólinn veiti þeim tækifæri til að ræða hvernig hægt er að hafa áhrif, þar sem það er oft á unglingsárunum sem börn fara að vinna hlutastörf og verða neytendur.

„Þegar við ræðum um loftslagsmál við unga fólkið kemur það því oft á óvart að til að mynda fataframleiðsla í heiminum sé ekki neitt sérstaklega umhverfisvæn. Sem ungir neytendur geta þau gert kröfur um að framleiðendur leggi áherslu á sjálfbæra framleiðslu, hvort heldur við framleiðslu fatnaðar eða matvæla.

„Nýi norræni skólinn" - loftslagsvænn skóli

Christine Antorini er undir áhrifum frá nýja norræna eldhúsinu og hefur kynnt hugtakið „Nýr norrænn skóli", framtíðarsýn sem byggir á umhverfisvernd. Hún bendir á þróunina undanfarin ár, þar sem góðir norrænir matreiðslumenn hafa farið að nýta hefðbundið norrænt hráefni og matreiðsluhefðir og gefið þeim nýtt líf.

„Það er mikilvægt að vera stoltur af uppruna sínum, hvort heldur við ræðum um matar- eða skólahefðir. Sameiginlegar norrænar skólahefðir byggja á samstarfi, ábyrgð á umhverfinu og félagslegri ábyrgð innan veggja skólans. Framtíðarsýnin um nýja norræna skólann felur í sér endurupptöku skólahefða, að láta nýja norræna eldhúsið verða sér hvatningu og því að við spyrjum okkur hvað við viljum að framtíðin beri í skauti sér. Jafnframt getum við leyft okkur að fá hugmyndir frá öðrum löndum," segir ráðherrann.

Tengiliðir

Kai Koivumäki
Sími +45 21 71 71 24
Tölvupóstur kkoi@norden.org

Heidi Orava
Sími +45 33 96 04 60
Tölvupóstur heor@norden.org

Tengt efni
  • Norræni loftslagsdagurinn (Event)

    Norræni loftslagsdagurinn verður haldinn í þriðja sinn þann 11.11.2011.Þema ársins er loftslag og matur. Á loftslagsdaginn eru nemendur og kennarar hvattir til umræðna um loftslagsmál. Dagurinn er þemadagur með verkefnum og samkeppni sem tengjast loftslagsmálum. Nánar á www.klimanorden.org

  • Norræna ráðherranefndin um menntun og rannsóknir (MR-U) (Organisation)

    Samstarfi norrænu ríkisstjórnanna um rannsóknir og menntun er stjórnað af norrænu ráðherrunum sem fara með málefni menntamála og rannsókna, saman mynda þeir MR-U. Ráðherranefndin vinnur að því að Norðurlöndin verði í fararbroddi hvað varðar þekkingu og samkeppnishæfni.