Document Actions

„Öflugasta samstarf í heimi er á Norðurlöndum“

„Norrænt samstarf er mögulega öflugasta samstarf í heimi. Ég tel að sameiginleg norræn stefna færi okkur mikil verðmæti", sagði Johan Strang, höfundur bókarinnar Nordiska gemenskaber á fundi með atvinnumálanefnd Norðurlandaráðs.

10/04 2013

Atvinnumálanefndin hafði boðið prófessor Johan Strang frá Miðstöð um Norðurlandarannsóknir til fundar, til að ræða hvernig hægt er að efla norrænt samstarf. Strang skrifaði bókina Nordiska gemenskaber og er bjartsýnn á sameiginleg tækifæri Norðurlanda.

„Þegar maður tapar trúnni á ESB samstarfið horfir umheimurinn til Norðurlanda og norræna líkansins. Norðurlönd sýna að hægt er að vinna saman. Rannsóknir og samgöngumál eru áhugaverð samstarfssvið. Og einnig orku- og velferðarmál.“

Strang telur einnig að umræðan sem nú á sér stað um sameiginlega varnar- og utanríkisstefnu sé velkomin.

„Umræðan kemur Norðurlöndum á kortið og sýnir Norðurlönd í leiðtogahlutverki sem þau hafa ekki verið í áður.

Atvinnumálanefnd Norðurlandaráðs ræddi einnig sameiginlega byggingastaðla, skattlagningu fjármagnshreyfinga og framlag til norræns samstarfsverkefnis um nýsköpunar og atvinnustefnu.

Ósló - Kaupmannahöfn á 180 mínútum.

Atvinnumálanefnd fékk ásamt náttúru- og umhverfsismálanefndinni upplýsingar um verkefnið The Scandinavian 8 million city. Verkefnið felst í því að tengja Ósló-Gautaborg-Kaupmannahöfn, og auk þess Gautaborg-Stokkhólm með háhraðalest.

Florian Nathanael Daub verkefnisstjóri sagði að reiknað hefði verið að háhraðalest sem byggð yrði með sömu tækni og notuð er í Japan og Kína, myndi gefa ferðalöngum tækifæri á að ferðast milli Óslóar og Kaupmannahafnar á tveimur og hálfri klukkustund. Nútímatækni gerir það einnig mögulegt að að byggja járnbrautina á fjórum árum.

Atvinnu- og umhverfisnefndirnar samþykktu að fylgja málinu eftir.

Tengiliðir

Anita Skoglund
Sími +4531717153
Tölvupóstur asko@norden.org