50.000 fræsýni send í frægeymsluna á Svalbarða
Alþjóðlega frægeymslan á Svalbarða fær stóra sendingu, á sama tíma og leiðtogar heims funda um lausnir á loftslagsbreytingum í Kaupmannahöfn.
Sunnudaginn 13. desember lendir flugvél með stóra sendingu af fræjum á flugvellinum í Longyearbyen á Svalbarða. Þar með komast rúmlega 50.000 fræsýni loksins á leiðarenda í alþjóðlegu frægeymsluna.
Í þessari sendingu eru fræ úr nytjaplöntum sem hafa verið aðlagaðar að þurru loftslagi. Meðal þeirra er korntegundin dúrra, kraftmikil tegund, sem þekkt er fyrir aðlögunarhæfni og viðnám við þurrki. Þessi „úlfaldi korntegundanna“ gæti verið lykillinn að landbúnaðaruppbyggingu á svæðum með saltríkan jarðveg og á þurrkasvæðum.
Tvær rannsóknamiðstöðvar í landbúnaði eru meðal þeirra sem leggja til fræin, og vinna þær báðar að rannsóknum á aðlögun plantna að þurrum svæðum. Þetta eru Alþjóðlega miðstöðin um landbúnaðarrannsóknir á þurrum svæðum ICARDA (International Center for Agricultural Research in the Dry Areas) og Alþjóðarannsóknastofnun um rannsóknir á ræktun á úrkomulitlum hitabeltissvæðum ICRISAT (International Crop Research Institute for the Semi-Arid Tropics).
- Líffræðileg fjölbreytni er grundvöllurinn að því að leysa þann vanda sem skapast í landbúnaði af völdum loftslagsbreytinga. Einungis með því að nýta fjölbreytni í vistkerfinu geta vísindamenn ræktað nýjar korntegundir, sem vaxa við gjörbreyttar aðstæður í framtíðinni. Líffræðileg fjölbreytni felst m.a. í fræjum sem safnað hefur verið saman í öllum heimsálfum og eru nú geymd í alþjóðlegu frægeymslunni á Svalbarða, segir Roland von Bothmer prófessor í erfðafræði og plöntuþróun, við sænska landbúnaðarháskólann.
Hann er einn úr hópi þeirra sem bera ábyrgð á rekstri frægeymslunnar. Frá því að rekstur hennar hófst í febrúar 2008 hefur hún fengið góð viðbrögð frá fræbönkum um allan heim sem hafa sent rúmlega 400.000 fræsýni til geymslu í sífrera Norðurskautsins.
Hjá frægeymslunni á Svalbarða er staðinn vörður um fjölbreytileika plönturíkisins. Markmiðið er að varðveita mikilvægustu erfðaauðlindir í landbúnaði til að framleiða örugg matvæli. Frægeymslan býður upp á varðveislu án endurgjalds á fræjum sem jafnframt eru geymd í fræbönkum annars staðar í heiminum.
STAÐREYNDIR
Alþjóðlega frægeymslan á Svalbarða er í eigu Norðmanna og er hlutafjármögnuð af Global Crop Diversity Trust.
Norræna erfðaauðlindastofnunin NordGen, ber ábyrgð á daglegum rekstri og umsjón með frægeymslunni. NordGen skipuleggur starfsemina í samvinnu við Global Crop Diversity Trust og þá fræbanka sem leggja inn.
The Global Crop Diversity Trust, í samstarfi við Matvæla og landbúnaðarstofnun Sameinuðu þjóðanna og með fjárhagslegum stuðningi frá Bill & Melinda Gates - sjóðnum fjármagnar undirbúning og flutning fræsýna frá þróunarríkjum og alþjóðlegum rannsóknamiðstöðvum s.s. ICRISAT og ICARDA.
Nánari upplýsingar um geymsluna
NordGen:www.nordgen.org
Alþjóðlega frægeymslan á Svalbarða:www.sgsv.no
The Global Crop Diversity Trust: www.croptrust.org
