Document Actions

Á að gera norrænt varnarmálasamstarf formlegra?

Frjálslyndir í Norðurlandaráði vilja að sett verði norræn ráðherranefnd um varnarmál. Hún á að tryggja tengingu almennings við stöðugt samþættara samstarf, að mati miðjuhópsins í ráðinu, sem einnig vill að sett verði á laggirnar sameiginleg norræn þingnefnd um varnarmál.

11/04 2013

Norrænt varnarmálasamstarf er mikilli þróun. Miðjuhópurinn í Norðurlandaráði leggur því til að sett verði á stofn formleg nefnd um samstarfið á vegum Norrænu ráðherranefndarinnar.

„Norrænt varnarmálasamstarf ætti að verða pólitískara og lýðræðislegra en það er nú, þar sem það eingöngu fer fram milli stjórnenda og ráðherra án nokkurs eftirlits þingmannanefnda", sagði Åsa Torstensson fulltrúi miðjuhópsins á fundi Norðurlandaráðs í Stokkhólmi 11. apríl.

Þjóðþingin munu í ár í fyrsta sinn hafa umræður um norrænt varnarmálasamstarf. En miðjuhópurinn vill að einnig verði haldnar árlegar þingumræðum um varnar- og utanríkismál.

Sænski samstarfsráðherrann taldi þó ekki ástæðu til að gera varnarmálasamstarfið formlegt.

„Óformlegar umræður milli landanna virka vel og samstarfið um innkaup og hernaðaræfingar á vegum NORDEFCO ganga mjög vel, þannig að ég sé ekki að við séum bættari með því að setja upp formlegan vettvang", sagði Björling í umræðunum á fundi Norðurlandaráðs.

Stefna í varnarmálum í brennidepli

Norðurlandaráð beindi kastljósinu að varnar- og öryggissamstarfi á Norðurlöndum á þemaþingi sínu í Stokkhólmi þann 11. apríl.

Í framhaldi af þemaþinginu sendi Norðurlandaráð yfirlýsingu til ríkisstjórna Norðurlanda, þar sem lagt er til að auka þingmannasamstarf um varnarmál og að haldnar verði hringborðsumræður milli Norðurlandaráðs og ráðherranna.

Norrænu varnarmála- og utanríkisráðherrarnir tóku einnig þátt í fundinum í Stokkhólmi, og gerðu þeir grein fyrir stöðu samstarfs ríkjanna á sviði varnar- og öryggisstefnu. Þeir munu nú meta hvernig starfinu verður haldið áfram í framhaldi af tillögu Norðurlandaráðs.

Tengiliðir

Terhi Tikkala
Sími +358 9 432 2559
Tölvupóstur terhi.tikkala@eduskunta.fi