Document Actions

Aðild Íslands að ESB hefði áhrif um öll Norðurlönd

Ef Ísland gengi í Evrópusambandið myndi það hafa áhrif á öll norrænu ríkin. Þetta kom fram í umræðum um stækkunarskýrslu ESB og mögulega aðild Íslands að Evrópusambandinu á námstefnu sem upplýsingaskrifstofan Norden i Fokus í Stokkhólmi stóð fyrir.

15/11 2010

Aðildarumsókn Íslendinga er eðlilegt skref þar sem þeir nálgast ESB sífellt meira í gegnum EES- og Schengensamningana.

„Annað hvort göngum við í Evrópusambandið eða tökum þá áhættu að EES samningurinn úreldist. Þess vegna var tímabært að senda inn umsókn og kanna hvort hægt væri að komast að samningum sem Íslendingar gætu sætt sig við", sagði Guðmundur Árni Stefánsson sendiherra Íslands í Svíþjóð.

En enn eru margar hindranir sem þarf að sigrast á, áður en að aðild kemur.

Axel Walldén, deildarstjóri stækkunarskrifstofu framkvæmdastjórnar ESB, ræddi um hvaða mál hefðu verið erfiðust í samningaviðræðunum sem hófust nú í júlí.

Myndband frá fundinum:

Fiskveiðar, landbúnaður og náttúruvernd eru þau svið sem erfiðast verður að aðlaga að lögum ESB. Þrátt fyrir efnahagskreppuna telur Walldén að Íslendingar eigi góða möguleika á því að uppfylla kröfur Evrópusambandsins.

Myndband: Siv Friðleifsdóttir um Ísland og ESB

„ESB veit að íbúar skipast í tvær fylkingar, með og á móti aðild, en þann vanda verða Íslendingar sjálfir að leysa", sagði Walldén.

Sænska ríkisstjórnin hefur margar ástæður til að fagna aðildarumsókn Íslendinga að ESB.

„Við erum sammála um mörg mál, meðal annars gegnsæi. Ísland yrði sjálfsagður samherji i nútímavæðingu innan ESB, ásamt löndum eins og Finnlandi og Danmörku", sagði Oscar Wåglund Söderström, ráðuneytisstjóri í ráðuneyti Birgittu Ohlsson ráðherra ESB málefna.

Hann benti einnig á aukið samstarf Norðurlanda og Eystrasaltsríkjanna á vettvangi ESB, og sagði Svíum vera hagur í því að Íslendingar gengu í ESB.

Aðild Íslendinga að ESB hefði hvað mest áhrif í Noregi af öllum norrænu ríkjunum.

„Noregur á einnig aðild að EES-samningnum auk Íslands og Liechtenstein. Formlega getur samstarfið haldið án Íslands, en ESB aðiild Íslands gæti einnig haft áhrif á samninginn. Felli Íslendingar aðild að ESB er sú hætta einnig fyrir hendi að þeir fjarlægist ESB og segi sig úr EES", sagði Ulf Sverdrup stjórnmálafræðingur og skrifstofustjóri norsku Evrópuskýrsluskrifstofunnar.

Upplýsingaskrifstofan Norden i Fokus, sænsk - íslenski samstarfssjóðurinn og fulltrúar framkvæmdastjórnar ESB í Stokkhólmi stóðu fyrir námstefnunni föstudaginn 12. nóvmeber.