Document Actions

Aðvörun: Jafnrétti má ekki lengur snúast eingöngu um kynferði

Hætta á pólitískri kreppu, ef eingöngu er fjallað um kynferði og ekki tekið tillit til fjölbreytileika í jafnréttisstefnu. Á norrænni-bandarískri námstefnu sem haldin var í Washington var hvatt til endurskoðunar á skilgreiningum á jafnrétti. Það voru danska sendiráðið í Washington og Norræna ráðherranefndin sem stóðu að námstefnunni.

12/03 2013

Færeyska þingkonan<b> </b>Bjørt Samuelsen ásamt Satu Haapanen frá Finnlandi og Michele Swers frá Georgetown University á námstefnu um jafnréttismál í Washington.

Hætta er á pólitískri kreppu, ef ákvarðanatökur í framtíðinni taka ekki tillit til alla þjóðfélagsþegna. Þetta er mat bandarískra vísindamanna um jafnréttis- og minnihlutamál. Þingmenn í Norðurlandaráði studdu hugmyndir bandarísku sérfræðinganna, og vilja gera norrænt jafnréttisstarf nútímalegra.

Jafnrétti ætti í framtíðinni einnig að fjalla um réttindi fatlaðra, trúarbrögð, kynhvöt og uppruna. Þetta voru skilaboð margra þeirra norrænu þingmanna, sem á mánudag, tóku þátt í norrænni-bandarískri jafnréttisnámstefnu í Washington í tengslum við norrænu menningarhátíðina Nordic Cool.

„Norðurlöndin eru í fararbroddi í heiminum, hvað varðar jafnrétti kynjanna. En hins vegar erum við ekki jafnframarlega og Bandaríkin hvað varðar jafnrétti fyrir alla þjóðfélagshópa", að mati m.a. finnsku þingkonunnar Silvia Modig.

Hún hvatti norræna stjórnmálamenn til að viðurkenna breytingar sem orðið hafa á samsetningu þjóðfélagshópa á Norðurlöndum.

„Samfélag okkar á að vera samfélag þar sem fjölbreytileiki er styrkur; allir eiga að hafa sömu tækifæri og það er mikilvægt t.d. fyrir þingmenn á Norðurlöndum að þeir séu fulltrúar allra þjóðfélagshópa. Við höfum ekki efni á að vera ekki með", sagði Silvia Modig.

Norrænar-bandarískar umræður

Finnska þingkonan tók þátt í námstefnunni í Washington ásamt norrænu þingmönnunum Satu Haapanen frá Finnlandi, Bjørt Samuelsen frá Færeyjum og Truls Wickholm frá Noregi.

Bandarískir þátttakendur voru Michele L. Swers, dósent við Georgetown University, Jacqueline Pata, framkvæmdastjóri, National Congress of American Indians og Julie Ajinkya, sérfræðingur hjá Center for American Progress. Sú síðastnefnda varaði við því að ekki nægði að jafnrétti næði eingöngu til kynferðis og að ekki væri tekið tillit til annarrar þróunar í þjóðfélagsgerðinni.

„Bandaríkin og heimurinn allur hafa ekki efni á því að taka ekki tillit til jafnréttis, fjölbreytileika og minnihlutahópa í stefnu- og samfélagsmótun framtíðarinnar. Við verðum hreinlega að fjárfesta í þessum hópum", sagði bandaríski vísindamaðurinn.

Norski þingmaðurinn Truls Wickholm lagði á námstefnunni áherslu á jafnréttisstarf sem unnið er í Noregi, þar sem einnig er tekið tilliti til fjölbreytileika. Truls Wickholm hvatti til þess að norræna jafnréttissamstarfið yrði styrkt, en varaði við tortryggni:

„Það eru alltaf einhverjir sem eru hræddir við breytingar, þegar rætt er um jafnréttismál og vernd minnihlutahópa í samfélaginu. En það á ekki að koma í veg fyrir áframhaldandi starf okkar", sagði Truls Wickholm..

Tengiliðir

Jesper F. Schou-Knudsen
Sími +45 33 96 03 55
Tölvupóstur jsk@norden.org

Jette Renneberg Elkjær ráðgjafi um menningarmál, danska sendiráðinu í Washington netfang: JETELK@UM.DK eða sími: +1 (202) 797-5377