Ættu Danir að setja upp áfengisverslun eins og er annars staðar á Norðurlöndum eða ætti að gera sígarettur lyfseðilskyldar og selja þær eingöngu í apótekum og lyfjaverslunum? Þetta eru nokkur af þeim málum sem fulltrúar í velferðarnefnd Norðurlandaráðs ræddu á fundi með sérfræðingum, embættismönnum og stjórnmálamönnum sem haldinn var í Brussel á mánudag og þriðjudag.
˵Norðurlöndin hafa árangursríkustu aðferðirnar við að hemja áfengisvandann og stuðla að heilbrigði íbúanna og því er mikilvægt að viðhalda áfengisverslunum ríkjanna og auka skatt á áfengi", sagði Thomas F. Babor. Mynd: Louise Hagemann
˵Norðurlöndin hafa árangursríkustu aðferðirnar við að hemja áfengisvandann og stuðla að heilbrigði íbúanna og því er mikilvægt að viðhalda áfengisverslunum ríkjanna og auka skatt á áfengi", sagði Thomas F. Babor, Ph.D., M.P.H., frá Lýðheilsudeild háskólans í Connecticut og meðhöfundur viðurkenndu bókarinnar: ˵Alcohol: No Ordinary Commodity”, á fundi með velferðarnefndinni.
Babor lagði á það áherslu að það væri mikilvægt að ástæður þess að viðhalda áfengisverslunum ríkisins væru skýrar, eins og hjá sænsku áfengisversluninni sem tekist hefur að fylgja þróuninni og aðlagast samfélagsþróuninni almennt. Hann varaði mjög við því að auka frjálsræði á áfengismarkaði eins og gert hefur verið til að mynda í Finnlandi.
Mariann Skar, framkvæmdastjóri og Tiziana Godenotti, forseti Euorcare(European Alcohol Policy Alliance) kynntu nýjar tillögur ˵less is better" sem nýlega voru gefnar út fyrir evrópska stjórnmálamenn með það að markmiði að takmarka tjón sem áfengi veldur.
˵Að okkar mati ætti markmið ESB að vera að minnka áfengisnotkun í Evrópu 2020 frá að meðaltali 12,5 lítrum í 9 lítra á fullorðinn einstakling á ári, í gengum stjórnun á markaðssetningu, hærra verði, takmörkun á aðgengi og aðvörun á flöskum", segir Mariann Skar.
Martin Seychell, aðstoðarframkvæmdastjóri DG Health and Consumers kynnti aðgerðir Framkvæmdastjórnar ESB sem felast í nýrri tóbaksvarnartilskipun, sem reiknað er með að verði samþykkt í lok árs 2012.
˵Tóbaksiðnaðurinn hefur verið sérlega hugmyndaríkur þegar kemur að því að lokka til sín nýja neytendur, þess vegna er afar mikilvægt að nýja tóbaksvarnartilskipunin nái einnig til e-sígaretta, neftóbaks og allra annarra nýrra gerða tóbaks með bragði o.s.frv." sagði Martin Seychell.
Hann sagði megináherslu ESB vera þá að koma í veg fyrir að sérstaklega ungt fólk færi að reykja, þar sem það væri auðveldara að lokka nýja neytendur til sín með auglýsingum.
˵Norræn áfengis- og tóbaksvarnarstefna frá sjónarhóli lýðheilsu" er meginþema velferðarnefndarinnar 2012 og munu stjórnmálamennirnir nú, meðal annars byggt á fundunum í Brussel, vinna tillögur sem lagðar verða fyrir Norðurlandaráðsþingið í Helsinki í nóvember.
Beate Christine Wang
Sími
+45 24 69 94 42
Tölvupóstur
bcw@norden.org
Siv Friðleifsdóttir (F)
Tölvupóstur
siv@althingi.is
Louise Hagemann
Sími
+45 21 71 71 41
Tölvupóstur
loha@norden.org