Afnema á stjórnsýsluhindranir innan Norðurlandanna og ESB
Nú á að verða auðveldara að búa og reka fyrirtæki á Norðurlöndunum. Afnám stjórnsýsluhindrana á Norðurlöndunum á að nýta sem dæmi um gott samstarf annars staðar í Evrópu. Að þessu er stefnt í dönsku formennskuáætluninni næsta ár, en þá taka Danir við formennsku í Norrænu ráðherranefndinni.
„Norðurlöndin ætla að marka sér sess sem atorkusamt svæði innan Evrópu. Ef það á að takast, skiptir það sköpum, að óþörfum hindrunum verði rutt úr vegi", segir Bertel Haarder.
- Ljósmyndari
- Magnus Fröderberg/norden.org
Einstaklingar, vörur og góðar hugmyndir eiga að geta streymt án hindrana yfir landamæri, ekki einungis milli Norðurlanda heldur innan Evrópusambandsins í heild. Þetta eru skilaboðin frá Bertel Haarder, sem er norrænn samstarfsráðherra Danmerkur.
Tilkynningin var send út við undirbúning stórrar námstefnu um Norðurlöndin og ESB, sem haldin verður 25. nóvember hjá Norrænu ráðherranefndinni.
„Norðurlöndin eiga að vera ímynd atorku í Evrópu. Ef það á að takast, skiptir það sköpum, að óþörfum hindrunum verði rutt úr vegi", segir Bertel Haarder.
„Norðurlöndin hafa nú þegar markað sér sess sem einstakt svæði innan ESB. „Við skulum því vera í fararbroddi og góð fyrirmynd í því að afnema stjórnsýsluhindranir, sem gera þegnunum lífið erfitt, hvort heldur þeir eru nemendur eða reka fyrirtæki", segir hann.
Bertel Haarder leggur áherslu á að Norðurlöndin eigi mjög góða möguleika á að marka sér sess í samstarfinu innan ESB. Hann bendir á nýju Eystrasaltsstefnuna sem skilgreint dæmi um það hvernig við á Norðurlöndum eigum í nánu samstarfi við ESB til að mynda um rannsóknir, sem eru einn af hornsteinum stefnunnar:
„Norræna Ödvegisrannsóknaáætlunin er stærsta sameiginlega verkefni Norðurlanda um rannsóknir hingað til. Hér gefst tækifæri til að sýna fram á, að Norðurlöndin geta mætt þeim áskorunum sem við stöndum frammi fyrir, á Norðurlöndum, í Evrópu og í heiminum öllum. Við getum í raun myndað náið og snuðrulaust samstarf þvert á rannsóknaumhverfi alls staðar á Norðurlöndunum", segir hann.
Danir munu, undir stjórn Bertel Haarder, leggja sérstaka áherslu á afnám hindrana á formennskuári sínu í Norrænu ráðherranefndinni 2010.
Tengiliðir
Jesper F. Schou-Knudsen
Sími
+45 33 96 03 55
Tölvupóstur
jsk@norden.org
Nánari upplýsingar:
Eva Marie Bagge Steenberg, Skrifstofu samstarfsráðherra, utanríkisráðuneytinu, evabag@um.dk, +45 33 92 00 00
