Áhersla var á þróun og aukið norrænt samstarf á sviði utanríkis- og varnarmála í umræðum um skýrslu forsætisráðherra um varnarmál árið 2012 í finnska þinginu á þriðjudag.
„Opinber umræða um norrænt varnarsamstarf hefur verið áberandi undanfarið og það er gott. Öflugt norrænt samstarf styrkir bæði aðgerðir innan NATO og ESB. Þátttaka þinganna er samt mikilvæg, og að setja þarf skýr markmið um norræna varnarmálasamstarfið" sagði Timo Soini (Sannf) sem talaði fyrir hönd utanríkismálanefndar.
Norðurlandaráð benti í apríl á mikilvægi þess að þingin tækju þátt í umræðunni um norræna varnarmálasamstarfið. Á þemaþingi ráðsins í Stokkhólmi var samþykkt tillaga um að auka samstarf við að koma í veg fyrir tölvuógnir og netárásir, forgangssvið sem lögð er sérstök áhersla á í finnsku skýrslunni um varnarmál.
Sérstakar umræður verða um norræna varnarmálasamstarfið í finnska þinginu þann 6. júní. Norðurlandaráð á frumkvæði að því að samskonar umræður munu fara fram í öllum norrænu þingunum vor eða haust 2013.
Heidi Orava
Sími
+45 21 71 71 48
Tölvupóstur
heor@norden.org