Alþjóðlegt starf Norðurlanda
Norrænu ríkin taka þátt í ýmsum verkefnum um víða veröld. En Norðurlandaráð, Norræna ráðherranefndin og ekki síst tengdar stofnanir eiga einnig aðild að alþjóðlegum verkefnum sem ná yfir vítt svið, allt frá kynjarannsóknum til loftslagsaðgerða. Nánar um þetta í desemberútgáfu Analys Norden.
Norðurlandaráð tekur virkan þátt í þingmannasamstarfi, hvort heldur er í Eystrasaltsríkjunum eða Rússlandi og Hvíta-Rússlandi.
Norrænir þingmenn eru einnig í samstarfi við Íra, Skota og aðrar þjóðir svo og Evrópuráðið og ÖSE.
Í norrænni árbók 2009 sem nýlega kom út er fjallað um aukið samstarf Norðurlanda á sviði öryggismála, samstarf sem einnig gæti leitt til öflugra alþjóðlegs öryggissamstarfs.
Ríkisstjórnir á Norðurlöndum taka virkan þátt í alþjóðlegu samstarfi fyrir tilstuðlan Norrænu ráðherranefndarinnar.
Norræna ráðherranefndin hefur um margra ára skeið tekið virkan þátt í samstarfi á Eystrasaltssvæðinu og er hún með skrifstofur í Eystrasaltstríkjunum þremur, Pétursborg og Kalíningrad. Ráðherranefndin tekur einnig virkan þátt í Eystrasaltsstefnu ESB og starfar með ESB að mörgum öðrum málaflokkum.
Norræna ráðherranefndin hefur m.a. ásamt ESB lagt áherslu á að styðja við lýðræðisuppbyggingu í Hvíta Rússlandi og styrkir ásamt fleirum hvít-rússneska útlagaháskólann EHU, sem starfar í Vilníus.
Að auki leggur Norræna ráðherranefndin mjög mikla áherslu á Norðurskautssvæðið og hefur gert eigin samstarfsáætlun um svæðasamstarf þar. Samstarf Norrænu ráðherranefndarinnar við grannríki í vestri er einnig mikilvægt, og að lokinni heimsókn háttsettra embættismann til Kanada í þessum mánuði er gert ráð fyrir að samstarf Norrænu ráðherranefndairnnar og Kanada fái byr undir báða vængi.
Norræna ráðherranefndin á að auki mikið og gott samstarf við önnur svæðisbundin samtök og vinnur náið með Norðurskautsráðinu, Barentsráðinu og Eystrsaltsráðinu.
Með hnattvæðingarferli forsætisráðherranna hefur Norræna ráðherranefndin beint kastljósinu að þeim málaflokkum þar sem Norðurlöndin skara fram úr. Meðal annars verður norræn orkutækni sýnd á á heimssýningunni EXPO 2010 í Sjanghæ, á ráðstefnunni Nordic Climate Solution í Kaupmannahöfn og fjallað verður ítarlega um þær í bandarísku vísindatímariti.
Að auki eiga norrænar stofnanir í samstarfi á breiðum grunni um allan heim.
Til dæmis taka Norræni þróunarsjóðurinn og Norræna umhverfisfjármögnunarfélagið þátt í fjárfestingum í loftslagsmálum í þróunarríkjunum, sem er mikilvægt í ljósi loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna COP15.
En fyrst og fremst er norræn þátttaka í alþjóðlegum verkefnum í höndum einstakra ríkja, og því gera greinarhöfundar grein fyrir í síðusta tölublaði Analys Norden á þessu ári.
Nánar á Analys Norden.
Tengiliðir
Michael Funch
Sími
+45 33960332
Tölvupóstur
mifu@norden.org
