Document Actions

Atvinnumála- og forsætisráðherrar ræða um atvinnumál ungs fólks í Stokkhólmi

Hápunktur formennskuáætlunar Svía í Norrænu ráðherranefndinni verður norræni vinnumarkaðsfundurinn Fleiri ungmenni í störf, og hefst hann í Stokkhólmi 16. maí . Norrænu atvinnumálaráðherrarnir og forsætisráðherrarnir munu taka þar þátt í pallborðsumræðum um tækifæri unga fólksins til að komast á vinnumarkað.

08/05 2013
Ljósmyndari
Magnus Fröderberg/norden.org

„Það gleður mig mikið að þessi fundur skyldi verða að veruleika. Atvinnuleysi meðal ungs fólks er efst á forgangslista sænsku ríkisstjórnarinnar á formennskuárinu í Norrænu ráðherranefndinni. Ég bæði trúi því og vona að vinnumarkaðsfundurinn muni leiða til mikilvægrar niðurstöðu og að löndin geti þar miðlað þekkingu sín á milli með mörgum góðum dæmum", segir Hillevi Engström atvinnumálaráðherra Svíþjóðar og formaður ráðherranefndar um atvinnulíf árið 2013.

Í upphafi dags mun Åsa Olli Segendorf frá sænska fjármálaráðuneytinu kynna nýjar tölur um atvinnuþátttöku ungs fólks á Norðurlöndum. Torsten Andersen frá Aarhus universitet í Danmörku mun kynna nýja efnahags-pólitíska rannsókn sem mun birtast innan tíðar í Nordic Econimic Policy Reveiw.

Í pallborðsumræðunum verður sjónum beint að þeim sviðum þar sem ungt fólk á erfiðast með að komast inn á vinnumarkaðinn og til hvaða aðgerða hægt er að taka, til að vinna gegn því að ungt fólk lendi í langtímaatvinnuleysi. Fundurinn verður sendur beint út áregeringen.se.

Í tengslum við vinnumarkaðsfundinn verður haldið Starfatorg unga fólksins. Á torginu verða góð norræn dæmi kynnt, sem sýna hvernig fyrirtæki, pólitík og verkefni hafa aukið möguleika unga fólksins að komast inn á vinnumarkaðinn.

Nánar um norræna vinnumarkaðsfundinn

Tengiliðir

Heidi Orava
Sími +45 21 71 71 48
Tölvupóstur heor@norden.org