Atvinnumálaráðherrarnir: Einstaklingur með skerta starfsgetu er mikilvæg auðlind
Veita á einstaklingum með skerta starfsgetu atvinnutækifæri að svo miklu leyti sem hægt er, og við eins eðlilegar aðstæður og unnt er að skapa. Um þetta voru norrænu atvinnumálaráðherrarnir sammála, þegar þeir hittu fulltrúa vinnumarkaðarins og norrænu nefndarinnar um málefni fatlaðra og ræddu aðferðir til þess að skapa atvinnutækifæri fyrir einstaklinga með skerta starfshæfni. Fundurinn var í Helsinki síðastliðinn mánudag.
Lauri Ihalainen, atvinnumálaráðherra Finnlands, ítrekaði mkilvægi þess að líta á einstaklinga með skerta starfsgetu sem auðlind en ekki vandamál, því norrænu ríkin stæðu frammi fyrir lýðfræðilegri þróun á næstu árum þar sem skortur yrði á vinnuafli.
- Þörf væri er á vinnuframlagi sérhvers einstaklinga með skerta starfshæfni. Fyrir marga er mikilvægt að eiga kost á starfi, ekki síst vegna tekjumöguleika. Einnig er það hagur fyrirtækja og vinnuveitenda að þessir starfskraftar séu nýttir, segir Lauri Ihalainen.
- Þörf er á norrænu samstarfi á þessu sviði og einnig milli samtaka fatlaðra. Fjármagn og aðferðir eru mismunandi, en við vinnum öll að sama markmiði, sagði Ihalainen.
Um þessar mundi vinnur er ríkisstjórn Finnlands að gera framkvæmdaáætlun með þátttöku allra ráðuneyta sem ætlað er að verði tilbúin í lok 2012. Norðmenn hafa einnig nýlega gert áætlun sem miðar að því að koma einstaklingum með skerta starfsgetu út á vinnumarkaðinn.
- Við eigum að styðja atvinnuskapandi aðgerðir og endurgjalda vinnuveitendum sem ráða einstaklinga með skerta starfshæfni. Auknar kröfur um skilvirkni og fjármálakreppan eru þó meginvandinn um þessar mundir, segir Hanne Bjurstrøm, atvinnumálaráðherra Noregs.
Hillevi Engström atvinnumálaráðherra Svíþjóðar telur að viðhorf og gildismat séu stærstu hindranirnar.
- Sífellt fleiri glíma við geðræn vandamál. Jafnframt segjast fjórir af hverjum tíu vinnufærum Svíum ekki vilja vinna með fólki með geðræn vandamál, segir Engström, sem ásamt hinum norrænu ráðherrunum vinnur að stefnumörkun um málefni fatlaðra. Hún felur m.a. í sér hvernig hægt er að hafa áhrif á viðhorf almennings.
Lóa Brynjúlfsdóttir, framkvæmdastjóri Norræna verkalýðssambandsins (NFS), ítrekaði að sambandið legði áherslu á norrænt samstarf í framtíðaráætlunum sínum.
- NFS eru samtök 9 milljón launþega á Norðurlöndum og rödd verkalýðshreyfingarinnar og launþega í norrænu samstarfi. Markmiðið er sjálfbært atvinnulíf á Norðurlöndum og það gerist með aukinni áherslu á norræna heildarsamninga og afnám stjórnsýsluhindrana, segir Lóa Brynjúlfsdóttir.
Tengiliðir
Lars Djernæs
Sími
+45 33960360
Tölvupóstur
ldj@norden.org
Heidi Orava
Sími
+45 33 96 04 60
Tölvupóstur
heor@norden.org
