Auglýst eftir umsóknum í áætlun um öndvegisrannsóknir: „Víxláhrif loftslagsbreytinga með þeim hluta jarðar þar sem vatn er frosið (Cryosphere)”.
Áætlun um öndvegisrannsóknir (TFI) auglýsir eftir umsóknum um Norræn öndvegissetur (NCoE) í undiráætluninni "Interaction between Climate Change and the Cryosphere" (ICCC).
Cryosphere þýðir sá hluti jarðar, þar sem vatn er frosið. Þetta ástand er áberandi á Norðurheimskautinu og svæðum sem liggja að því, sem á við um nær öll Norðurlönd.
Markmiðið með NCoE-ICCC er að:
- Styrkja samstarf um rannsóknir á kerfum jarðar innan og utan Norðurlanda.
- Auka skilning á stöðugleika og þrótti þess hluta jarðar þar sem vatn er frosið
- Skilgreina færibreytileika í líkönum kerfa jarðar
- Styðja þekkingarverkefni, sem eru áhugaverð fyrir samfélagið, vísindasamfélagið, atvinnulífiið og /eða innviði landanna
Öndvegissetur, NCoE, ætti að auka gæði rannsókna, árangur, samkeppnishæfni og gera norrænar rannsóknir sýnilegri í gegnum aukið samstarf milli Norðurlandanna. Fyrirmyndar rannsóknahópar frá þremur norrænum löndum hið minnsta, geta sett á laggirnar öndvegissetur
Markmið öndvegissetra er að styðja við öndvegisrannsóknir; að skapa krítiskan massa og virðisauka; og að vekja athygli á sýnilegum áhugaverðum norrænum rannsóknum í evrópsku og alþjóðlegu samhengi. Þegar við á taka fulltrúar atvinnulífs, stefnumótendur og stofnanir um samfélagsþróun þátt í starfi öndvegissetra.
Áætlunin hefur 100 milljónir norskra króna til úthlutunar á næstu 5 árum, og er reiknað með að 1 - 3 öndvegissetur verði styrkt.
Auglýsingin var birt 12. nóvember 2009 og umsóknarfrestur er til 12. febrúar 2010 kl. 16.00 CET (Centra European Time).
Tengiliðir:
Michael Andersson ráðgjafi
netfang: michael.andersson@nordforsk.org
Sími: +47 94 16 85 47
Simone Heinz ráðgjafi
netfang: simone.heinz@nordforsk.org
Sími: +47 90 84 53 82
