Auglýst eftir umsóknum í orku- og samgönguáætlunina
Nú má sækja um styrki í orku- og samgönguáætlun Norrænu ráðherranefndarinnar til verkefna sem snúast um rafknúin samgöngutæki.
Í fyrstu auglýsingu orku- og samgönguáætlunar Norrænu ráðherranefndarinnar er lögð áhersla lausnir á sviði rafknúinna samgöngutækja.
- Ljósmyndari
- Johannes Jansson/norden.org
Í fyrsta áfanga orku- og samgönguáætlunarinnar er lögð áhersla á að fjármagna verkefni sem snúa að rafknúnum samgöngutækjum. 12 milljónum norskra króna verður skipt á milli verkefna á því sviði.
Meginmarkmið orku- og samgönguáætlunarinnar er að styrkja sjálfbærar samgöngur á Norðurlöndum, efla þróunarstarf, prófanir og notkun sjálfbærra samgöngulausna. Markmiðið tengist með beinum hætti framtíðarsýn Norrænu ráðherranefndarinnar um Norðurlönd sem „Grænadal Evrópu" – tilraunasvæði fyrir sjálfbærar samgöngulausnir.
Norðurlönd hafa náð árangri í samstarfi sínu í orkumálum. Gott dæmi um það er norræni raforkumarkaðurinn sem er skilvirkur og norrænt samstarf á sviði orkurannsókna sem staðið hefur yfir lengi. Það hefur leitt til þekkingarmiðlunar á milli landa, myndun tengslaneta, samskiptaleiða og sameiginlegs verklags. Þetta sparar tíma og stuðlar að auknum gæðum og skapar forskot í norrænu samstarfi á sviði sjálfbærra samgöngulausna.
Stjórnendur orku- og samgönguáætlunarinnar hafa í samstarfi við orku- og samgöngugeirana skilgreint þrenns konar verkefni á sviði rafknúinna samgöngulausna og er styrkjum skipt eftir þeim. Rannsóknarþættirnir eru þrír: tækniþróun, rammaskilyrði og viðskiptaþróun.
Í fyrsta áfanga orku- og samgönguáætlunarinnar er lögð áhersla lausnir á sviði rafknúinna samgöngutækja. Seinna á verkefnatímanum verður auglýst eftir umsóknum á breiðari grunni. Núverandi tímarammi verkefnisins er þrjú ár, frá byrjun ársins 2010 til loka ársins 2012.
Texti auglýsingarinnar í heild sinni og nánari upplýsingar eru á: www.nordicenergy.net/transport
Tengiliðir
Skrifstofa orku- og samgönguáætlunarinnar, Amund Vik, ráðgjafi, Norrænar orkurannsóknir, Amund.vik@nordicenergy.net, +47 916 08 347
