Aukið samstarf Norðurlanda og Eystrasaltsríkjanna
Sérfræðingaskýsla um samstarf Norðurlanda og Eystrasaltsríkja var lögð fram á Norðurlandaráðsþingi í dag. Norrænu utanríkisráðherrarnir eru fylgjandi auknu samstarfi ríkjanna. Margir þingmenn óttast hins vegar að það leiði til hernaðarsamstarfs.
Søren Gade fyrrum varnarmálaráðherra Dana kynnti skýrslu sína um samstarf Norðurlanda og Eystrasaltsríkjanna á Norðurlandaráðsþinginu í Reykjavík. Skýrslan var kynnt í almennum umræðum um aukið norrænt samstarf á sviði utanríkis- og varnarmála.
Gade benti á, að í skýrslunni sem unnin er í samstarfi við Valdis Birkavs fyrrum forsætis- og utanríkisráðherra Lettlands, væri fjallað um efni sem spannaði allt frá utanríkis- og varnarmálastefnu til friðargæslu, orkumála og menntamála.
Þrátt fyrir það taldi meðal annarra Line Barfod úr flokkahópi vinstri sósíalista grænna í Norðurlandaráði að tekin væru skref í átt að hervæðingu fremur en endurskipulagningu. Hún óttast að aukin áhersla verði lögð á hernaðarsamstarf fremur en friðargæslu.
Carl Bildt utanríkisráðherra Svíþjóðar, sagði alls ekki um hervæðingu að ræða, heldur myndi aukning samstarfs Norðurlanda og Eystrasaltsríkja styrkja þau í alþjóðasamstarfi og auðvelda þátttöku þeirra í friðargæslu.
Alexander Stubb utanríkisráðherra Finnlands, Jonas Støre utanríkisráðherra Noregs og Lene Espersen utanríkisráðherra Danmerkur lýstu yfir stuðningi við þær tillögur sem settar eru fram í skýrslunni um að auka enn frekar samstarf Norðurlanda og Eystrasaltsríkjanna.
„Tillögurnar í skýrslunni eru einfaldar og settar fram af góðum hug, þess vegna verður auðvelt að hrinda þeim í framkvæmd", sagði Lene Espersen meðal annars.
Jonas Støre vísaði bæði til sérfræðingaskýrslunnar og skýrslu Stoltenbergs frá árinu 2009 um aukið norrænt utanríkis- og varnarsamstarf og spurði hvort ekki væri tími til kominn að formgera samstarfið enn frekar og staðfesta þar með norræna samstöðu á sviði varnarmála.
Trivimi Velleste, fulltrúi Eystrasaltsráðsins, systursamtaka Norðurlandaráðs, nýtti tækifærið til að þakka Norðurlöndum fyrir stuðning þeirra við Eystrasaltsríkin þrjú þegar þau losuðu sig undan yfirráðum Sovétríkjanna. Án stuðnings þeirra væru Eystrasaltsríkin ekki það sem þau eru í dag, sagði Velleste.
Að lokum sagði finnski utanríkisráðherrann að árið 2011, þegar 20 ár eru liðin frá því að Eystrasaltsríkin lýstu yfir sjálfstæði, væri upplagt að efla enn frekar samstarf Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna.
Tengiliðir
Michael Funch
Sími
+45 33960332
Tölvupóstur
mifu@norden.org
