Aukin áhersla á öflugt norrænt orkusamstarf
Norðurlönd eiga að vinna að því að gera Evrópu græna. Norrænu ríkin eiga með góðu fordæmi að sýna hvernig hægt er með samtakamætti að stuðla að því að byggja upp öruggt orkukerfi, vinna gegn loftslagsbreytingum og stuðla að hagvexti.
Norrænu ríkin eiga með góðu fordæmi að sýna hvernig hægt er með samtakamætti að stuðla að því að byggja upp öryggt orkukerfi, vinna gegn loftslagsbreytingum og stuðla að hagvexti. Þetta kom fram á fundi orkumálaráðherranna í Kaupmannahöfn þann 25.október 2010.
- Ljósmyndari
- Johannes Jansson/norden.org
Stóri vandinn sem norrænu ríkin þurfa að leysa er samræming á norræna raforkumarkaðinum, þannig að hægt verði að flytja sívaxandi magn endurnýjanlegrar orku í sameiginlegu kerfi og að hugmyndin um sameiginlegan raforkumarkað verði að veruleika Ákvarðanir ráðherranna um raforkumarkaðinn eru hér að neðan, en þeir fjölluðu um úrlausnarefni á norrænum raforkumarkaði.
Í yfirlýsingu ráðherranna kemur fram að ástæða er til að efla samstarf um endurnýjanlega orkugjafa og orkunýtingu. Mörg tækifæri liggja í samstarfi um endurnýjanlega orkugjafa og aðgerðum til að bæta orkunýtingu á Norðurlöndum. Til þess að kveikja umræðu um orkunýtingu í Evrópu, snúa norrænu orkumálaráðherrarnir sér í sameiningu til framkvæmdastjóra orkumála hjá ESB og hvetja til frekari aðgerða af hálfu ESB varðandi orkumerkingar og strangari kröfur til orkunýtingar framleiðsluvara.
Þróun nýrra tæknilausna og aukið þekkingarsamstarf mun gegna mikilvægu hlutverki í framtíðinni og stuðla að grænum hagvexti á Norðurlöndum, segja ráðherrarnir og lýsa yfir ánægju sinni með nýja stefnu Norrænna orkurannsókna, þar sem lögð er áhersla á sjálfbærar orkulausnir og skilvirkan raforkumarkað.
Ráðherrarnir fjalla einnig um mikilvægi þess að fyrir næsta fund þeirra verði fylgt eftir nýrri tæknilaus sem þykir lofa góðu, eins og t.d. að geyma orku í vatni – svokallaðri ”pumped storage” tækni – sem gæti verið græn lausn á strjálbýlum svæðum með slæmu aðgengi að raforkuneti. Mikilvægt er að nota meira af endurnýjanlegum orkugjöfum og tryggja þannig örugga orkuveitu.
Ennfremur eru ráðherrarnir ánægðir með að mörg verkefni hafa verið sett í framkvæmd, sem styrkja eigi norræna innviði og notkun á rafknúnum bílum.
Að lokum hafa ráðherrarnir hleypt samkeppninni Norrænt orkusveitarfélag af stokkunum. Hún á að vera viðurkenning fyrir þau sveitarfélög sem taka þátt í og hafa hrint í framkvæmd nýskapandi orkuverkefnum til þess að skapa grænan hagvöxt og framþróun. Öllum sveitarfélögum á Norðurlöndum er boðið að taka þátt í samkeppninni og þau sem tilnefnd verða og sigurvegarinn, sem valinn verður vorið 2011, fá kynningu á Norðurlöndum og á alþjóðavettvangi. Verkefnið er þróað í samstarfi Dana, sem fara með formennsku í ráðherranefndinni og Finna, sem taka við formennsku árið 2011.
Ráðherrarnir gera ráð fyrir að þeim verði kynnt margvíslegar og framsýnar norrænar orkulausnir sem þegar eru fyrir hendi í sveitarfélögum á Norðurlöndum.
Nánari upplýsingar: Lykke Friis orku- og loftslagsmálaráðherra hjá Martin Lindgreen skrifstofustjóra, sími +45 33922965 eða Halldór Ásgrímsson framkvæmdastjóri Norrænu ráðherranefndarinnar hjá Anne Sofie Bender ráðgjafa, sími +45 33 960274.
