Document Actions

Aukin áhrif kvenna - bjartari framtíð

Ný norræn matargerðarlist var aðalumræðuefni Eskil Erlandsson, landsbyggðarráðherra Svíþjóðar, þegar hann talaði um efnið „Góð framtíð fyrir alla - jafnrétti, loftslagsbreytingar og líffræðilegur fjölbreytileiki í hnattvæddum heimi“, í tengslum við menningarhátíðina NORDIC COOL 2013 í Washington.

02/03 2013

Bæði konur og karlar eiga að stunda störf í landbúnaði og skógarvinnslu, sagði Eskil Erlandsson. Ljósmynd: Bodil Tingsby

Fjöldi manns tóku þátt í námstefnunni, en þeir tveir sem aðallega tengdu efnið við jafnrétti voru Eskil Erlandsson frá Svíþjóð, sem fer með formennsku í Norrænu ráðherranefndinni þetta árið og Robert Engelman, framkvæmdastjóri rannsóknastofnunarinnar Worldwatch Institute í Washington.

Landsbyggðarráðherrann sem einnig er formaður norrænu ráðherranefndarinnar um fiskveiðar, landbúnað, matvæli og skógrækt (MR-FJLS) ítrekaði mikilvægi þess að leggja áherslu á þýðingu Nýrrar norrænnar matargerðarlistar fyrir gæði matvæla og einnig fyrir þróun hagkerfisins á landsbyggðinni.

Ný norræn matargerðarlist hefur haft áhrif á hvernig litið er á gæði matvæla og aukið eftirspurn neytenda eftir matvælum frá heimabyggð, sagði han og ítrekaði að það yki tækifæri kvenna og karla til að vinna við og lifa af landbúnaði og skógarvinnslu. Ekki eingöngu á Norðurlöndum. Þau gildi sem felast í Nýrri norrænni matargerðarlist breiðast nú út um allan heim.

Samkvæmt Robert Engelmand frá Worldwatch Institute var fyrst farið að meta til fulls þátttöku kvenna í stjórnum í norrænu ríkjunum.

„Norrænu ríkin eru í fararbroddi hvað jafnrétti varðar“ sagði hann og taldi að sú afstaða væri að breiðast út ekki síst á þeim svæðum sem tengjast loftslagsmálum.

Rannsóknir sýna að drengir og stúlkur um allan heim bregðast misjafnlega við skýrslum um loftslagsbreytingar. Drengirnir sjá hversu alvarlegt málið er og reikna því með að einhver sjái um málið. Stúlkurnar velta fyrir sér hvað þær geta gert.

„Þess vegna verðum við að vinna að því að efla áhrif kvenna á þróunina í framtíðinni“, sagði Robert Engelman að lokum.

Tengiliðir

Bodil Tingsby
Sími +45 33 96 03 57
Tölvupóstur bot@norden.org