Bæta þarf norrænan tungumálaskilning
Olemic Thommessen úr flokkahópi hægrimanna í Norðurlandaráði hefur lýst yfir áhyggjum af því að ekki sé farið eftir norræna tungumálasáttmálanum á Norðurlöndum.
Olemic Thommessen, úr flokkahópi hægrimanna í Norðurlandaráði lýsti yfir áhyggjum af því að ekki værið farið eftir norræna tungumálasáttmálanum á Norðurlöndum.
- Ljósmyndari
- Johannes Janssson/norden.org
Norrænu tungumálin eru undirstaða norræns samstarfs. Thommessen spurði sænska samstarfsráðherrann hvaða aðgerðir sænska ríkisstjórnin hefði gripið til, til að uppfylla tungumálasáttmálann í ljósi þess að margir ungir Svíar starfa í grannríkjunum
- Við höfum sett á fót rafrænt hjálpartæki til þess að bæta þekkingu nemenda og kennara á norrænum tungumálum, sagði Ewa Björling, samstarfsráðherra Svía. Hún sagði einnig að nemendurnir fengju aukaeiningar ef þeir velja að læra norræn tungumál.
Thommessen lagði einnig til að Norðurlönd ynnu saman að því að þýða ESB tilskipanir. Sænski samstarfsráðherrann var sammála þeirri hugmynd, sem að hennar mati getur einnig komið í veg fyrir að nýjar landamærahindranir verði til.
Tengiliðir
Olemic Thommessen
Tölvupóstur
olemic.thommessen@stortinget.no
